Tímarit lögfræðinga - 01.06.1988, Síða 52
Frá meginreglu 62. gr. eru tvær undantekningar:
Ef riftunarþoli hefur fengið peningagreiðslu frá þeim, sem varð
gjaldþrota, eða muni sem hann hefur selt fyrir peninga, ber hon-
um að endurgreiða þá peninga, væntanlega með vöxtum.
Hafi riftunarþoli verið grandsamur um riftanleika ráðstöfunar,
þegar hún fór fram, ber honum að greiða búinu tjónbætur. Sjá
nánar um þetta í tl. 7.3. hér að neðan.
Þá er í 2. tl. 62. gr. tekið fram, að hagnað, sem fæst eftir höfðun
riftunarmáls, beri að greiða búi.
7.3. REGLA 63. GR. GJALDÞROTALAGA.
Ef riftun ráðstöfunar fer fram á grundvelli 59. eða 61. gr. gjald-
þrotalaga, er svo fyrir mælt í 63. gr., að sá, er hag hafði af ráðstöfun,
skuli greiða búinu bætur eftir almennum reglum.
Meginregla þessa ákvæðis leiðir til þess, að niðurstaða riftunar á að
gera búið eins sett og hin riftanlega ráðstöfun hafi aldrei farið fram,
þ.e. þetta fer eftir almennum reglum um greiðslu skaðabóta. Slíkt er
eðlilegt, þar sem 59. gr. og þó einkum 61. gr., eru byggðar á huglægum
sjónarmiðum.
7.4. REGLA 65. GR. GJALDÞROTALAGA.
Regla 65. gr. gjaldþrotalaganna er endurgreiðslureglum 62. og 63. gr.
til fyllingar. Reglan er svohljóðandi:
„Ef sérstaklega stendur á, má lækka eða fella niður kröfu á þann,
sem hag hafði af ráðstöfun eða réttargerð, ef greiðsla kröfunnar væri
svo miklum erfiðleikum bundin, að ósanngjarnt má teljast, og önnur
atvik leiða til hins sama“. Regla þessi er nýmæli í gjaldþrotalögum, en
á sér hliðstæðu í ýmsum lögum, s.s. 136. gr. loftferðalaga nr. 34/1964
og 2. mgr. 24. gr. lögræðislaga nr. 68/1984.29)
Ekki verður séð að reglu þessari hafi ennþá verið beitt í íslenskum
rétti. Orðalag reglunnar gefur til kynna að henni beri einungis að beita
í undantekningartilvikum, þ.e. „ef sérstaklega stendur á“. Því hefur
verið haldið fram, að reglunni verði ekki beitt ef riftunarkrafa stofn-
ast vegna viðskipta rekstraraðilja (i forretningsmæssige forhold). Þá
er einnig talið, að reglunni verði beitt í algjörum undantekningartilvik-
um, ef rift er á grundvelli 61. gr. gjaldþrotalaganna.30)
29) Sbr. iimmæli í greinargerð í Alþ.tíðindum 1977, 103. mál, bls. 33.
30) Sbr. Mogens Munch, bls. 496.
114