Tímarit lögfræðinga - 01.12.1988, Síða 62
Frá
Lögfræðingafélagi
Islamls
AÐALFUNDUR 1987
Ár 1987, þriðjudaginn 27. október kl. 20.00, var haldinn aðalfundur Lögfræð-
ingafélags (slands í stofu 101 í Lögbergi.
1. Formaður félagsins, Eiríkur Tómasson hri. setti fundinn og bauð fundar-
menn velkomna. Formaðurinn bar upp tillögu um Jónatan Þórmundsson
sem fundarstjóra og Guðnýju Björnsdóttur fundarritara. Tillagan var sam-
þykkt.
2. Fundarstjóri tók við fundarstjórn og gaf hann stðan formanni félagsins
orðið fyrir skýrslu stjórnar. Formaður gerði fyrst grein fyrir fundum sem
haldnir voru á starfsárinu. Fram kom að bókaðir félagsmenn á fundun-
um að einum undanskildum voru 352 eða 44 að meðaltali á fundi. Þá
greindi formaður frá málþingi félagsins árið 1987 sem haldið var á Hótel
örk í Hveragerði. Málþingsefni var „Hlutafélög á umbrotatlmum“, mál-
þingsgestir 110 talsins. Þá kom fram I máli formanns að stjórnarfundir
á árinu voru 10 talsins og auk þess var mikið starf unnið utan fundanna,
m.a. af nefnd sem undirbjó málþingið undir forystu Valgeirs Pálssonar.
Þá vék formaður að endurskipulagningu á fjármálum Tímarits lögfræð-
inga og greindi frá ákvörðun stjórnar í samráði við ritstjóra tímaritsins,
að ráða Finn Torfa Hjörleifsson sem ritstjórnarfulltrúa að tímaritinu. Þá
sagði formaður frá umfjöllun stjórnarinnar hvað varðar þátttöku Lög-
fræðingafélagsins I Bandalagi háskólamanna og fyrirhugaðri ráðstefnu
um framtlð laganáms hér á landi.
3. Framlagning endurskoðaðra reikninga.
Gjaldkeri félagsins, Jón Finnbjörnsson, skýrði ársreikninga félagsins.
4. Fjármál Tímarits lögfræðinga.
Framkvæmdastjóri tímaritsins, Guðrún Margrét Árnadóttir, gerði grein
fyrir stöðu Tímaritsins. Reikningsyfirlit lágu frammi, en samkvæmt yfirliti
fyrir 1987 er tímaritið réttu megin við strikið.
5. Fundarstjóri gaf orðið laust fyrir umræður um skýrslu stjórnar og reikn-
inga. Jónas Haraldsson hrl. spurðist fyrir um kostnaðarliðinn „veitingar
á stiórnarfundum". Gjaldkeri, Jón Finnbjörnsson, skýrði nánar þennan
gjaldalið.
6. Atkvæðagreiðsla um reikninga.
Reikningarnir voru samþykktir samhljóða.
260