Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1929, Blaðsíða 116
116
7. Löndin á lioti, en ekki si hreyfingu.
Nú hafa einstöku jarðfræðingar, eins og t. d. Ameríku-
maðurinn Taijlor og Þjóðverjinn Wegener haldið þvi fram,
að basalteðja þessi myndi um það bil að verða fljótandi, en
af því og aðdrælti tungls og sólar myndi leiða, að löndin
flyttust ofurhægt vestur á bóginn, líkt og flóðbylgjan á hafinu
gerir undir áhrifum tungls og sólar. En ef svo væri, að
basalteðjan væri bráðnuð, ælti jörðin sjálf að verða egglaga
undir þessum aðdráttaráhrifum og flóðbylgja hennar þar að
auki að verka eins og hemill á snúningshraða jarðar um
sjálfa sig, svo að dagurinn smálengdist. En ekkert slikt hafa
menn komizt á snoðir um, frá þvi er fyrstu sólmyrkvar
voru mældir og fram til þessa dags, og því er erigum flutn-
ingi á löndunum nú til að dreifa og »hann i mesta máta
óliklegurct.’) En þar fyrir getur þetta Iiafa átt sér stað áður
hvað eftir annað og getur enn átt sér stað, jafnskjótt og
eðjan tekur að bráðna. Þetta hefir komið þó nokkrum sinn-
um fyrir, frá því er jarðskorpan fyrst myndaðist. Jarðsagan
sýnir, að 6 til 7 byltingar hafa gengið vfir jörðina, og verða
þær naumast skýrðar á annan hátt en þann, að basalteðjan
hafi bráðnað. En hvað hefir þá hitað basaltlagið og raunar
líka granítið i fjallsrótunum svo, að hvorttveggja tók að
bráðna? Þetta er það, sem menn hafa alls ekki aðgætt né
reynt að finna neitt svar við, fyr en nú á allra siðustu
timum.
8. Gí-eiislantli efni í öllnni bergtegundum.
Árið 1906 benti Lord Rayleigli á það, að radium fyndist í
ýmsum bergtegundum og næmi hitaframleiðsla þess á sek-
úndu 30.0 x 10-1J gr. cal. Árið 1909 voru margar bergteg-
undir rannsakaðar í þessu skyni, og kom þá í ljós, að það
voru aðallega tvö þyngstu geislandi efnin, úranium og tho-
rium, sem fundust í öllum bergtegundum, svo og útflæði
þeirra, radium-emanation og thorium-emanation. Efni þessi
yrðu að siðustu fyrir útgeislan sína að óvirku blýi, úran-
blýi, sem vegur 206, og thorium-blýi, sem vegur 208. Annað
bl5T, sem og finnst í jarðskorpunni, vegur kringum 207 (207.2)
og gelur það annaðhvort verið sambreiskingur úr þessum
2 tegundum blýs eða stafað frá einhverju öðru hraðvirkara
geislaefni, sem nú er horfið.
Nú er það svo, að hvorki þrýstingur, hiti né nein önnur
1) The Surface-History, bls. 172.