Búnaðarrit - 01.06.1919, Page 82
BÚNAÐARRIT
192
um. Búnaðarfjelagið semur og sendir út til sambandanna
frumvarp til samþykta eða fóðurbirgðafjelagslaga, til hlið-
sjónar fyrir almenning, og dreifir þeim út um hreppana, en
til þess er ætlast, að þeir verði venjulegast fóðurbirgðafjelaga-
eða samþykta-svæði. Látum hjer fylgja uppkast til hliðsjónar,
sjerprentun úr »íslendingi«.
Nefndin þykist þess fullviss, að hjer sje loksins leið fund-
in út úr fóðurskorts- eða horfellis-voðanum, ef menn fást til
að fara hana.
Þyki nauðsynlegt að styðja þenna fjelagsskap með fjár-
framlögum, virðist liggja beinast við að nota til þess Bjarg-
ráðasjóðinn. Verður honum tæplega haganlegar varið, sam-
kvæmt tilgangi sínum.
21. Urn loigu á Arnarbællsforum. Frá jnrðræktarnefnd.
Nefndin hefir athugað erindi hr. Eggerts Jónssonar, þar
sem hann óskar álits búnaðarþingsins um, hvort veita beri
honum tryggingu fyrir framhaldsleigu í samtals 35—40 ár á
svonefndum Arnarbælisforum f Ölfusi, sem hann hefir fengið
leigurjett á prestsskapartíð núverandi prests í Arnarbæli.
Nefndu erindi fylgir, meðal annara skjala, brjef biskups
til stjórnarráðsins og brjef frá stjórn Búnaðarfjelagsins og er í
báðum mælt með því að Eggert fái forirnar leigðar til 35
ára. Ennfremur fylgja meðmæli sýslunefndar Arnessýslu.
Tilgangur Eggerts er, að gera tilraunir með heyvinnuvjelar
og skuldbindur sig til að verja altað 20000 króna til nefndra
tilrauna og ræktunarbóta, auk 800 króna ársleigu.
Nefndin lítur svo á, að tilraunir þær, sem hjer er um að
ræða, muni ef vel tekst, hafa mikla þýðingu víðsvegar um
land, þar sem staðhættir eru líkir sem á Arnarbælisforum,
og geti leitt af sjer mikilsverða breytingu á heyskaparháttum
og geri auðveldan heyskap á ýmsum stöðum, þar sem hann
er mjög erfiður eða jafnvel ómögulegur með þeim aðferðum
er tfðkast. Einnig er á það að líta, að hjer fæst tilraun,
gerð um mikilvægt atriði án styrks af almanna fje, og eftir
áliti nefndarinnar engum til meins.
Nefndin leyfir sjer því að bera fram eftirfarandi tillögu til
þingsályktunar: