Hugur - 01.01.1991, Qupperneq 64
62
Kenningar um merkingu
HUGUR
hugmyndin um hugmynd, hugmyndin um andlega samsvörun eininga
málsins, sé minna en einskis nýt fyrir málvísindin. Mér sýnist sem
atferlissinnar hafi rétt fyrir sér í því að tal um hugmyndir sé jafnvel
fánýti eitt fyrir sálfræði. Gallinn við hugmyndina „hugmynd" er að
notkun hennar, líkt og vísunin til svæfingarmáttarins hjá Moliére,
býður heim þeirri blekkingu að eitthvað hafi verið útskýrt.5 6
Það var sagt hér að ekki væri hægt að ganga að því vísu að setningar
væru sömu merkingar nema því aðeins að ráða mætti það af mál-
hneigðum manna og breytni, en það er þó ekki eini vandinn. Sé
tungumálið tekið þessum tökum verður erfitt að gera grein fyrir þvf
einu hvernig ólík orð eða setningar geta verið sömu merkingar, eða
því að setningar geti á einhvern veg verið sjálfljósar, sannar af
sjálfum sér. Quine hefur raunar höggvið að greinarmuninum á rök-
hæfingum og raunhæfingum í ritgerðinni „Tvær kreddur raunhyggju-
manna“. Enn eitt sem er ljóst er að ef farið er að ráðum Quines
verður það fjarri því að vera áhlaupaverk að grafast fyrir um merkingu
orða og setninga í tungumáli á vísindalegan máta, þar sem við hvert
einasta skref þarf að festa kenninguna í sessi með vísun í breytni
manna og hneigðir. í kenningasmíð sinni notar Quine þá aðferð
meðal annars að skoða slíka rannsókn eða þýðingu, sem hann kallar
róttæka þýðingu (radical translation), til að komast að því hvar
merkingu sé að finna í tungumáli og þá hvernig megi finna hana.
Róttœk þýðing
Kunnasta framlag Quines til umfjöllunar um merkingu er án efa
kenning um það sem nefnt hefur verið þýðingabrigði. Sennilegast er
best að ráða hvað í þeirri kenningu felst og hvað af henni sprettur, af
tali Quines um róttœka þýðingu. Við skulum nú fallast á það með
Quine, í það minnsta um stund, að sá efniviður sem alvarlegum
málvísindamönnum ber að vinna með séu málhneigðir manna og
breytni, og róttæk þýðing er þýðing á fjarlægu, áður óþekktu
tungumáli, í anda þessa og þá án nokkurra þeirra hjálpartækja sem
venjulega standa mönnum til boða við þýðingar. Það eina sem
þýðingin er reist á er athugun á málhneigðum manna og breytni. Slík
5 Sama rit, s. 29.
6 „Thc Problem of Meaning in Linguistics" í From a Logical Poinl of View, 2.
útg. (Harvard University Press, Cambridge 1980 [1. útg. 1953]), s. 47-8.