Hugur - 01.01.1992, Síða 40
HUGUR 5. ÁR, 1992
s. 38-43
Er heimspeki framtíðarvon
skólakerfisins?
Ágúst Borgþór Sverrisson rœðir við Matthew Lipman í
tilefni afkomu Lipmans til Islands í júní 19921
Að gefa þekkingunni gildi
Eg varð nijög snortinn af nokkrum ummcelum í fyrirlestrum þínum2
sem mér finnast vera nátengd: Þú sagðir að við þörfnuðumst ekki
endilega heimspeki sem slíkrar heldur miklu fremur þess sem heim-
speki getur veitt okkur. Ennfremur sagðir þú að það væri mikilvœgara
að geta beitt þekkingunni en að afla sér þekkingar. Er það rétt til
getið að í þessum fullyrðingum sé komist að kjarna alls þess sem
heimspeki fyrir börn stendurfyrir og hefurfram aðfœra?
Fyrsta atriðið í þessu sambandi sem mig langar til að nefna er þetta:
Það er að mínum dómi ekki næg ástæða til að bæta nýrri grein á nám-
skrá í skóla að greinin sé góð sem slík. Hún þarf einnig að vera góð
fyrir allar hinar námsgreinarnar. Hún þarf að styrkja þær, gera
auðveldara að læra þær, auka skilning á þeim og fleira í þeim dúr, til
að það sé réttlætanlegt að bæta henni á námskrána.
1 Telja má bandaríkjamanninn Matthew Lipman brautryðjanda á sviði heimspeki-
iðkunar með bömum. Lipman kom fram með kennsluaðferðir sínar í lok sjöunda
áratugarins, en áður hafði hann starfað um tæplega tveggja áratuga skeið sem
heimspekiprófessor við Kólumbía háskóla í Bandaríkjunum. Þróunarstöð sína í
bamaheimspeki stofnaði Lipman fyrir rúmlega tuttugu ámm og hefur skólastarf í
anda kenninga hans breiðst óðfluga út. Heimspeki er nú hluti af námskrá í æ fleiri
grunnskólum í Bandaríkjunum auk þess sem sjálfstæðum heimspekiskólum á borð
við þann sem rekinn er hér í Reykjavík hefur fjölgað mjög vestra. — í aðferðum
Lipmans má segja að tími Sókratcsar og Platóns sé runninn upp á ný. í ritum
Platóns er heimspekin sett fram með samræðusniði og persónurnar rannsaka
vandamál og hugtök með rökræðum. Þetta er það sem börn gera í barna-
heimspekiskólum. í stað þess að innbyrða upplýsingar og harðar staðreyndir, eru
hin ýmsu vandamál tekin til rannsóknar með aðferðunt samræðunnar, þar sem
bömin skiptast á um að hafa orðið, hlusta livert á annað og vega og meta rök hvers
annars. Sum vandamálin eru úr sérskrifuðum bókum eftir Lipman sem fjalla um
börn í ýmsum hversdagslegum vanda. í einni bókinni er tekið á öllum helstu
vandamálum rökfræðinnar, í annarri á ýmsuni siðferðisspurningum og í hinni
þriðju á frumspekilegum vandamálum. Sjá nánari útlistun í erindi Hreins Pálssonar
aftar í þessu hefti.
2 Á meðan Lipman dvaldi hér á landi flutti hann tvo fyrirlestra. Sá fyrri fjallaði um
siðfræðikennslu bama en sá síðari um mannlega dómgreind og sérstöðu hennar.