Hugur - 01.01.1992, Page 53
HUGUR
Heimspeki með börnum og unglingum
51
Yfirfœrsluleikni. Yfirfærsla á sér stað á milli ólíkra tungumála eða
innan sama tungumáls þegar merking á einu sviði er færð yfir á annað.
Allri yfirfærslu fylgir túlkun og takmark hennar er að varðveita
merkingarkjarna þess sem yfirfært er. í heimspekilegri samræðu er
stöðugt verið að umorða og búa til dæmi til að rökstyðja eða grafa
undan skoðunum sem haldið er á loft.
Það verður ekki komist hjá því að leikniflokkun er ætíð að nokkru
komin undir þeim sem flokkar. Hvert fræðasvið og jafnvel hver
fræðimaður heldur í sinn flokkunarmáta og það er engu líkara en
flokkunarmátinn öðlist stundum sjálfstætt líf og taki völdin af þeim
sem fræðin stunda.
Ávinningur
Eg hef annars staðar gert grein fyrir helsta ávinningi þess að ástunda
heimspekilega hugsun með börnum.9 Hann er þríþættur:
1. Áhrif á annað nám heimspekinema eru jákvæð og ótvíræð. Auðvelt
er að sýna fram á þetta tölfræðilega með ríkjandi rannsóknarháttum
og hefur það margsinnis verið gert.
2. Samlyndi nemenda eflist. Ýrnsar vettvangsrannsóknir hafa sýnt
fram á að svo er og reynsla fjölmarga kennara staðfestir þetta.
Vettvangsrannsóknir hafa hins vegar átt á brattann að sækja gagn-
vart tölfræðirannsóknum, það gengur verr að fjármagna þær og
erfiðara er að finna fólk sem kann til verka.
3. Síðast en ekki síst standa vonir til að heimspekilegum samræðum
fylgi lýðræðislegur ávinningur, að þær undirbúi nemendur til
virkrar þátttöku í lýðræðissamfélagi. Hér er komið að langtíma-
markmiði sem ekki verður rannsakað að sinni.
Það er ekki enn komið að því að nemandi eigi sér skólagöngu að
baki þar sem heimspekin hefur verið höfð í öndvegi frá fyrstu tíð og
öðrum greinum til stuðnings. Rannsóknir gefa hins vegar vísbendingu
um að áhrif vel heppnaðs heimspekinámskeiðs vari í u.þ.b. tvö ár hjá
nemendum áður en þau fjari út. Sumir benda þó á að þetta taki
9 Hreinn Pálsson, Heimspeki með börnum (Rannsóknastofnun uppeldismála,
Reykjavík 1986). „Hvers vegna heimspeki með börnum?" Ný Mennlamál 1986, 4
(1), 12-14. Educational Saga: Doing Philosophy with Cliildren in Iceland
(Doktorsritgerð varin við Michigan State University 1987).