Hugur - 01.01.1992, Page 58
HUGUR 5. ÁR, 1992
s. 56-62
Þorsteinn Hjartarson
Heimspeki í grunnskóla1
Ég hefi gert tilraun til þess að stunda heimspeki með nemendum í
Brautarholtsskóla á Skeiðum um tveggja ára skeið. Þessi tilraun hefur
m.a. opnað augu mín fyrir því að nemendur hafa frjórra ímyndunarafl
en framganga þeirra í öðrum kennslustundum bendir til og sannfært
mig um að böm eru oft vanmetin, skynsemi þeirra er meiri en margur
fullorðinn ætlar. Það vekur einnig athygli mína að bömin geta hugsað
um flókin viðfangsefni og svo virðist sem þau geri sér grein fyrir að
hugsanir og hugmyndir eru raunverulegar á sinn hátt ekki síður en
efnisheimurinn. Hins vegar er hætt við að þau bæli niður hugsanir
sínar vegna neikvæðra viðbragða fullorðinna við óþægilegum
spurningum (sem ýmist stafa af skilnings-, áhuga- eða getuleysi). Það
getur orðið til þess að trú þeirra á mikilvægi eigin hugarheims
minnkar eða glatast og dregur jafnvel úr þroska þeirra. Ekki eru nema
örfá ár síðan farið var að stunda heimspeki með bömum hér á landi.
Þessi viðleitni hefur óneitanlega verið fremur ómarkviss, eins og gefur
að skilja, og alfarið komin undir frumkvæði einstakra grunnskóla-
kennara sem hafa sýnt efninu áhuga.
Á vorönn 1992 í Brautarholtsskóla voru vikulegir tímar í heimspeki
hjá 5. - 7. bekk (eldri deild) sem telur 10 nemendur. Sumt fólk er
eilítið undrandi þegar ég segist stunda heimspeki með nemendum
mínum. Vissulega eru það eðlileg viðbrögð því margir tengja heim-
spekina fyrst og fremst við háskóla og heimspekinga. Fræði sem eru
torskilin og ekki aðgengileg almenningi. Hér gefur að líta hluta sam-
ræðu með nemendum sem ég tók upp á segulband í tengslum við
lokaverkefni í heimspekinámskeiði sem haldið var í Kennaraháskóla
íslands á haustönn 1991. Leiðbeinandi þar var Hreinn Pálsson.
Nöfnum nemenda hefur verið breytt.
1 Samræðan sem hér fer á eftir er hluti af erindi sem flutt var á ráðstefnu um
heimspekikennslu á grunn- og framhaldsskólastigi 26. apríl 1992. Að undanskilinni
samræðunni birtist erindið að stofninum til í Menntamál, 3. tbl. 10. árg. 1992, s.
17-21.