Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1924, Blaðsíða 91
ALMANAK
67
Þorsteinsdóttur. Karitas Helga er fædd 9. nóvem-
ber 1857 í Tunguseli í Sauðaneshreppi í Norður-
Þingeyjarsýslu. Foreldrar hennar: Þorsteinn 111-
ugason og kona hans Hallfríður Jóhannesdóttir.
Illugi faðir Þorsteins bjó í Skoruvík á Langanesi.
Illugi var sonur Einars sterka í Skoruvík. — í Win-
nipeg dvaldi Jakob þar til vorið 1888, að hann
flutti út í Álftavatnsnýlendu. Var þar í 2 ár. En
varð að flytja þaðan vegna vatnsflóðs og bleytu,
og þarafleiðandi slægjuleysis. Þaðan fór hann til
Grunnavatnsbygðar ásamt Kristjáni Sigurðssyni.
Bygðu þeir hús þar. Var það fyrsta húsið, sem ís-
lendingar bygðu í þeirri bygð. Þar dvaldi Jakob til
vorsins 1891(7), að hann flutti aftur til Winnipeg.
Var þar til vorsins 1894. Flutti þá til Big Point
bygðar og bjó þar til 1903. Hann bygði fyrstur fs-
lendinga hús á “Tanganum” (Big Point) fyrir vest-
an “Kílana”. Svo hefi eg heyrt sagt. Héðan úr
bygð flutti Jakob til Westbourne, Man., og bjó þar
til 1911. Þann 13. apríl 1911 lagði hann upp frá
Westbourne með skyldulið sitt, áleiðis til Atha-
baska, Alta. Þar hefir hann búið síðan, á heima 3
rnílur frá bænum Athabaska.
Jakob hefir um allmörg ár undanfarin verið fiski-
veiða-umsjónarmaður fyrir stjórnina vestur þar. —
Síðla í marzmánuði 1918 komu þau hjón Jakob og
Helga í skemtiför hingað norður í bygðir, til West-
bourne og Big Point, til að finna gamla vini og
kunningja. Að kvöldi mánudagsins 1. apríl var
þeim hjónum, Jakobi og Helgu, haldið fjölment
samsæti að Herðibreið., samkomuhúsi bygðarinn-
ar. Þar voru ræður haldnar og kvæði flutt, og þeirn
hjónum færðir að gjöf gripir til minja. Samsæti
þetta sýndi, liversu gott ítak þau hjón áttu í hug-
um manna norður hér.
Þau hjón hafa, sem fleiri, reynt örðugleika
frumbýlisára nýbyggjanna í þessu landi. Hafa þó
ætíð haft efni til hlítar. Nú eru þau komin í góð
efni og búa góðu búi Jakob er gerfilegur maður,