Búnaðarrit - 01.01.1932, Blaðsíða 2
BÚNAÐARRIT
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
hefir skrifstofu í Reykjavík, Lækjargötu 14 B. Skrifstofan gefur
upplýsingar og leiðbeiningar í öllum greinum Iandbúnaðarins, eftir því,
sem starfsmenn félagsins geta í té látið. Aðal-starfsgreinar eru þessar:
Á vegum Sigurðar Sigurðssonar búnaðarmálastjóra:
1. Umsjón með framkvæmd jarðræktarlaga og sandgræðslu:
Sigurður Sigurðsson, búnaðarmálastjóri.
2. Jarðyrkja: Ráðunautur Pálmi Einarsson, annast allar mæl
ingar fyrir stærri jarðabótum, einkum áveitum, framræslu og
sandgræðslu.
Samskonar störfum gegnir Ásgeir L. Jónsson, vatnsvirkja-
fræðingur, undir umsjón félagsins, en á kostnað ríkissjóðs.
-Á vegum Metúsalems Stefánssonar, búnaðarmálastjóra:
3. Garðyrkja: Ráðunautur Ragnar Ásgeirsson, annast garðyrkju-
tilraunir við héraðsskólann á Laugavatni og leiðbeinir í garðrækt.
4. Fóðurrækt: Ráðunautur Metúsalem Stefánsson, búnaðarmála-
stjóri, annast fóðurræktar- og áburðartilraunir í Gróðrarstöðinni
í Reykjavfk; hefir eftirlit með tilsvarandi tilraunum annarsstaðar
á landinu og leiðbeinir í fóðurrækt.
5. Grasfrærækt: Ráðunautur Klemenz Kr. Kristjánsson. Hann
rekur fræræktarbú félagsins á Sámsstöðum í Fljótshlíð, og
leiðbeinir um allt er að grasfrærækt lýtur.
6. Hrossarækt: Ráðunautur Theodór Arnbjörnsson, annast allt
er að hrossarækt lýtur, og fóðurbirgðafélögum.
7. Nautgriparækt: Ráðunautur Páll Zóphóníasson, veitir allar
leiðbeiningar um nautgriparækt.
8. Sauðfjárrækt: Ráðunautur Páll Zóphóníasson, veitir allar
leiðbeiningar um sauðfjárrækt.
9. Verkfæra-val og verkfæra-tilraunir. Ráðunautur Árni G.
Eylands, leiðbeinir um verkfæri og vélar, í samvinnu við S. í. S.,
og stendur fyrir verkfæra-tilraunum sem B. í. lætur gera.
10. Fóðurtilraunir: Þórir Guðmundsson, kennari á Hvanneyri,
stendur fyrir fóðurtilraunum, er félagið lætur gera með sauð-
fé og kýr.
11. Klak og veiði í vötnum: Ráðunautur Ólafur Sigurðsson,
bóndi, Hellulandi.
Þeir, sem óska leiðbeininga, sendi um það skrif-
lega beiðni til skrifstofu Búnaðarfélags íslands.
ÖLLUM FYRIRSPURNUM ER SVARAÐ ÓKEYPIS!