Dvöl - 01.01.1944, Blaðsíða 8
Nú eru þáttaskil orðin i sögu „Dvalar,“ nýr kafli að hefjast. Það lœt-
ur að líkum, að góðar óskir mínar fylgi henni á leið. Vona ég og, að þeir,
sem lagt hafa „Dvöl“ liðsinni fyrir minar sakir, ef einhverjir eru, láti
hana njóta velvildar sinnar áfram.
Verði aldrei um hana sagt, að týnzt hafi götur gengins vinar!
JÓN HELGASON.
Slðan Vigfús Guðmundsson lét af útgáfu og ritstjórn „Dvalar,“ hef-
ur Samband ungra Framsóknarmanna gefið hana út. Hún hefur þó eigi
verið stjórnmálarit, heldur eingöngu bókmenntarit, til frœðslu og
skemmtunar, svo sem öllum er kunnugt, sem hana þekkja. Nú hefur
S. U. F. ekki séð sér fœrt að sjá henni farborða lengur vegna annarra
viðfangsefna. Bentu þá líkur til , að „Dvöl“ mundi verða úti. En hún
átti vini um land allt, sem mundu eftir henni, og víða að hafa borizt ósk-
ir um, að „Dvöl“ kœmi út áfram. Nú hafa nokkrir menn gert um það
samtök að reyna að veröa við þeim óskum. Hversu það tekst er óséð,
en tilraunin er gerð af góðum hug og af virðingu fyrir því starfi og
þeim anda, sem nœrt hefur „Dvöl“ á undanförnum árum, — og lesend-
um hennar. Ætlun hinna nýju útgefenda er að halda þeirri stefnu, sem
„Dvöl“ hefur verið mörkuð frá upphafi, „að flytja lesendum sinum úr-
val þýddra smásagna, frœðandi og skemmtandi greinar um erlent og
innlent efni, Ijóð og Ijóðaþýðingar, frumsamdar íslenzkar skáldsögur,
ritdóma, gamansögur og fleira." Til þess að inna þetta hlutverk af hönd-
um, hefur „Dvöl“ leitað sér liðs, og hafa margir ágætir menn heitið
henni efni og öðrum stuðningi. Vœntir hún þess einnig, að ýmsir lesend-
ur hennar og vinir sendi henni efni, eins og verið hefur á liðnum árum.
„Dvöl“ mun telja það sérsvið sitt að flytja úrval smásagna — eink-
um þýddra.Smásagan er í œtt við Ijósmyndina.Hún gefur hlutina i leiftri.
Á annatímum þessarar styrjaldar hafa mörg skáld orðið að leggja lang-
söguformið á hilluna og fást i þess stað við smásögur. Af þessum sökum
hefur orðið meira til af smásögum en ella, og mörg frœg skáld hafa nú
sent frá sér smásögur, þótt lítið hafi þau áður fengizt við þá grein bók-
mennta. Er enginn vafi á því, að þar á meðal er margt sagna, sem
skipað verður siðar meir i perlusafn bókmenntanna. Á þessu sviði á
„Dvöl“ því œrið hlutverk að vinna, og hún vill kappkosta að vera fram-
vegis — sem hingað til — sjóður, sem geymir bezta safn erlendra smá-
sagna, sem til eru á islenzkri tungu.
Þó vill hún flytja íslenzkt efni eigi minna en fyrr, og alveg sérstak-
lega bjóða rúm sitt ungum og efnilegum mönnum, sem eru að hefja
ritferil sinn.
Þessi árgangur ritsins mun koma i fjórum heftum og verða að
minnsta kosti þrjú hundruð blaðsíður. Annað heftið mun koma út fyrir
miðjan júní, hið þriðja i september og hið fjórða fyrst í desember —
jólahefti. Verð ritsins á þessu ári verður 20 krónur, og er þess vœnzt,
að það þyki hóflegt. Ætlazt er til, að áskrifendur sendi ritinu það í póst-
ávísun fyrir 1. júní þessa árs.
Efni ritsins þykir ekki ástæða til að kynna nú, enda eigi fullráðið
l allan árganginn. Þó má geta þess, að birt er framhaldssaga, sem lýkur
í árganginum. „Dvöl“ birti ágœtar framhaldssögur fyrir nokkrum árum,