Dvöl - 01.01.1944, Side 40
D V ÓI
Ka) Kunk
Snemma í janúar í vetur
barst helfregn danska prests-
ins Kaj Munks hingað til
lands. Sú fregn hneit ís-
lendingum að hjarta.
Kaj Munk var fœddur í
Maribo á Láglandi 13. janúar
1898 og var sonur iðnaðar-
manns. Hann missti foreldra
sína mjög ungur og ólst upp
hjá fósturforeldrum, og tók
liann upp nafn fósturföður
síns. Er hann óx upp, brauzt
hann til mennta af mikilli
fátœkt og lauk stúdents-
prófi nitján ára gamall. Um
það leyti skrifaði liann fyrsta
leikrit sitt, og fannst flest-
um fátt til um. Er Munk
lauk námi, gerðist hann
prestur í litlu og rýru kalli,
Vedersö á Jótlandi, og þjón-
aði því œvina á .enda. Gerð-
ist hann afburða kennimað-
ur, málsnjall, eldheitur og
hiklaus í flutningi skoðana
sinna. Hafa rϚur hans ver-
ið gefnar út og vakiö óskipta
athygli og hrifningu manna.
Það var eigi fyrr en um
1930, að Kai Munk var settur á stórskáldabekk, og síöustu ár cevi sinnar var
hann talinn fremsta leikritaskáld sinnar samtíðar á Norðurlöndum.
Merkustu skáldverk hans munu vera ,,Oröið“, „Niels Ebbesen“ og „Hann sit-
ur við deigluna“. Tvö hin fyrst nefndu eru íslendingum kunn að efni, því að
Leikfélag Reykjavikur sýndi „Orðið“ í fyrra vetur og bœði hafa verið flutt
í Ríkisútvarpið. Hið þriðja — „Hann situr við deigluna" — kom út árið 1938
og tekur kynflokkahatur og Gyðingaofsóknir til meðferðar. Er það hin harð-
asta vörn fyrir jafnrétti og frelsi allra manna.
Er Þjóðverjar hertóku Danmörku, taldi Kaj Munk það heilaga skyldu sína
að bannfœra lygina og ranglœtið og bera sannleikanum vitni. Mundi sú rödd
ar, því að í húsi guðs er orðið frjálst og prédikunarstólinn knýr menn til þess
að bannfœra lýgina og ranglœtið og bera sannleikanum vitni. Mundi sú rödd
fá að hljóma lengi?
Hinn fjórða janúar í vetur komu fjórir menn heim á prestssetrið og tóku
Kaj Munk fastan og fluttu liann til Silkiborgar. Þar var hann leiddur fyrir
rétt í herbúðum Þjóðverja, og að því loknu fóru þrír menn með hann út fyrir
borgina og myrtu hann. — Þeir sviptu Kaj Munk lífi en gáfu lionum um leið
ódauðlegan orðstir og dönsku þjóðinni og öllum mönnum meiri eld í kyndil-
inn, sem mun lýsa frelsishugsjónum mannkynsins veginn um ókomna tíma.