Dvöl - 01.01.1944, Blaðsíða 41
dvöl
35
i\ o i* €l a Ii 1 C* riejí
Döden kan flamme som
kornmo.
Klarere ser vi enn för
hvert liv i dens hvite smerte:
det er de beste som dör.
Þegar innrásin í Noreg
var gerð, var Nordalil Grieg
staddur i Osló. Hann skip-
aði sér þegar í varnarsveitir
Norðmanna, sem virkur her-
maður og barðist með norska i
hernum unz yfir lauk heima
i Noregi, og á vígstöðvum í
Norður-Noregi orti liann sitt
fyrsta frelsis- og styrjaldar-
Ijóð, — „17. maí 1940.“ Er
vörn hersins lauk í Noregi,
komst Grieg undan til Bret-
lands og gekk í norska her-
inn þar. Hann helgaði nú
frelsisbaráttu N orðmanna
skáldgáfu sína, orti mörg
eldheit hvatningarljóð ogsótti
efni þeirra í lietjudáðir og
harmsögur styrjaldarinnar.
Eru ýmis þessara kvœöa til
á islenzku í afburða-þýöingu
Magnúsar Ásgeirssonar. Á
þessu ári átti að gefa út hér
á landi heildarútgáfu stríðsljóða Griegs, og œtlaði hann sjálfur aö koma hingað
i vetur til þess að hafa eftirlit með prentun þeirra.
Sú för var aldrei farin.
Nordahl Grieg var fœddur 2. nóv. 1902 og var því enn ungur maður. Hann
var kvœntur leikkonunni Gerd Grieg, sem er íslendingum kunn fyrir leik sinn
hér í fyrra. Nordahl Grieg kom einnig liingað til lands 1942 og var fagnað
sem skáldi og hetju, er hann las hér upp Ijóð sín.
Nordahl Grieg var fyrst og jremst baráttumaöur fyrir frelsi og lífi þjóðar
sinnar og beitti sinu bitrasta vopni í þeirri baráttu. En hann vissi, að liann
varð aö þekkja allar myndir styrjaldarinnar til þess að geta beitt þvi vopni
fullkomlega og veriö trútt baráttuskáld. Þess vegna sté liann í rauðan eldinn
hvað eftir annað á landi, á sjó eða í lofti. Þess vegna sté hann upp í flugvél,
sem fór til árásar gegn óvinunum hinn 3. des. í vetur. Sú flugvél kom ekki aftur.
Nordahl Grieg féll fyrir þjóð sina, og í skáldskap sinum, lífi og dauöa
daf hann mönnunum það boðorð, aö frelsið og lífið er eitt og liið sama.
Sú fullvissa er fœdd í oss öllum,
aö frelsið sé líf hvers manns,
jajn einfalt og eðlisbundið
sem andardráttur hans.