Dvöl - 01.01.1944, Side 86
80
DVÖL
við hann: „Það var guðs mildi, Nikulás,
að þú drapst ekki hann Sigurð um dag-
inn.“
„Já,“ sagði Nikulás, „það segið þér satt,
prestur minn góður, það er auðséð, að
guð hefur verið í verki með mér.“
*
Presturinn: Mikið fjarskalega feitt svín
eigið þér þarna.
Bóndinn: Já, það segið þér satt, prestur
góður. Þess væri óskandi, að við værum
eins vel búnir undir dauða okkar og það.
*
Rimman var hroðaleg, orrustan hörð
og Jónas bóndi skriðinn inn undir lausa-
rúmið. — „Komdu fram undan rúminu,
svínið þitt, raggeitin, liddan, ef þú þorir,“
öskraði konan á gólfinu með rúmfjölina
reidda. —
„Nei, kella mín, ekki geri ég það fyrr
en mér sýnist. Ég ætla nú að sýna þér,
að ég er herra i mínu húsi, og læt ekki
ógna mér til að gera annað en ég sjálfur
Vil.“
*
Hreppstjóri nokkur var einhverju sinni
að borða miðdegisverð með konu sinni.
Þá kom vinnukona inn og sagði, að kom-
inn væri maður, sem vildi tala við hrepp-
stjórann.
„Segðu manninum, að ég komi eftir tíu
mínútur," sagði hreppstjórinn.
„Nei, heyrðu, segðu manninum, að hann
komi eftir hálftíma, þá verðum við búin
að borða," sagði konan.
„Segðu manninum, að ég komi eftir tíu
mínútur," endurtók hreppstjórinn.
„Nei, segðu manninum, að hann komi
eftir hálftíma," sagði konan og brýndi
röddina.
„Þú veizt líklega hverjum þú átt að
hlýða og hver er hreppstjórinn í þessum
hreppi," sagði hreppstjórinn stranglega.
„Já, já, mikil ósköp. Ég segi þá mann-
inum að hreppstjórinn komi eftir hálf-
tíma,“ sagði vinnukonan og fór.
Kanpendnr Dvalar!
Verð ritsins á þessu ári er 20
krónur og er það mjög lágt miðað
við stærð og efni ritsins og önnur
tímarit.
Áskriftargjaldið á helzt að greið-
ast þegar við móttöku þessa heftis
og alls ekki síðar en 1. júní í sumar.
Það á að sendast í póstávísun, af
því að það er hentugast og ódýrast.
Þetta eru vinsamleg tilmœli ritsins
til kaupenda. Með því að gera þetta,
tryggja þeir útkomu ritsins og sjálf-
um sér skilvísa sendingu þess.
Ef einhverjir eiga eftir að greiða
árganginn, þegar þriðja heftið kem-
' ur út, verður það sent gegn póst-
kröfu út um land, en það hefur í
för með sér töluverðan aukakostn-
að fyrir áskrifendur og allmikil ó-
þœgindi fyrir útgáfuna.
Sendið andvirðið í póstávísun.
Jiýir áNkrifemlur
Þið ættuð að vekja athygli kunn-
ingja ykkar á „Dvöl“. Sýnið þeim
ritið og segið þeim þetta:
Nýir kaupendur, sem senda á-
skriftargjald ritsins — tuttugu
krónur — í póstávísun með pöntun,
fá síðasta árgang ritsins í kaup-
bœti meðan upplag endist.
Mundi ekki einhvern þeinra langa
til að eignast „Dvöl?“
Áritun:
Tímaritið „Dvöl“
Pósthólf 1044
Reykjavik