Dvöl - 01.07.1946, Síða 13

Dvöl - 01.07.1946, Síða 13
dvöl 155 — Ef til vill, svaraði hún óákveð- ið. Miðvikudagskvöldið kom. Carrut- hers og félagi hans hreyfðust mjúklega um troöfullt dansgólfiö í E1 Morocco. Owen fannst þetta dásamlegt kvöld. Þegar þau voru komin heim, kyssti hann hana. Akela, sem annars var svo köld, féll út úr hlutverkinu og endur- galt kossinn af tilfinningu. Síðan sleit hún sig gætilega lausa. — Ó, elsku Owen, þetta máttiröu ekki. Snjöll stúlka. Hún vissi hvernig á að neita kossi án þess aö missa af honum. — Þú kyssir alveg eins og hestaprangari, bætti hún við, Öwen varð himinlifandi yfir þessari viðurkenningu. — Við skul- um ríöa út á morgun, ljósið, sagði hún svo. — Já, elskan. ’ \ Morguninn eftir riöu þau hlið við hlið í skugga trjánna. — Vilt þú ætíð ríða við hlið mína? spurði Owen, eins og á leik- sviði. — Já, Owen, ætíð. •—• Ég elska þig. Þegar söguhetjan okkar heyrði þessi orð, vissi hún að hún hafði sigrað. Owen gafst skilyrðislaust upp fyrir Akelu um aldur og ævi. Rándýrið hafði sigrað. Allar konur eru rándýr. S. K. þýddi. * * * hvert flýgur ÞÚ — ? Hvert flýgur þú, litli fuglinn minn, er fölva haustsins á grasiö slær? Ég hlusta á sumarsönginn þinn, hann söng mig gleðinni ávalt nær. Þú komst með vorblænum, vinur minn, er vetrarskuggarnir liðu lijá, , þá vaknaði aftur við óðinn þinn mín áður kulnaða sumarþrá. Er haustið kemur og nálgast nótt úr norðursins kalda, myrka geim þú hraðar för þinni héðan skjótt, ég heyri þytinn frá vængjum tveim. Þín leið var mörkuð um langsótt höf til landanna hlýju suður frá, en ég stóð eftir við opna gröf þar önduð sumarvon mín lá. Jónas Tryggvason.

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.