Dvöl - 01.07.1946, Blaðsíða 31
DVÖL
173
Athyglisvcrð og áhrifamikil frásögn um
faijruAtu náttúfukafntfarir /hmeríku
EFTIR JO CHAMBERLIN
í apríl 1906 stóð San Francisco-
borg á hátindi framtaks og þróun-
ar. Allar búðir voru troðfullar,
leikhúsin alltaf yfirfull og gisti-
húsin urða að úthýsa fólki vegna
rúmleysis. íbúarnir voru 400 þús-
und.
Þriðjudaginn 17. apríl söng
Enrico Caruso í Carmen í Grand
Opera. Þeir, sem seinast fóru að
hátta þá nótt, voru ekki nema rétt
lagztir út af þegar þeir köstuðust
aftur fram úr rúmunum. Húsin
léku á reiðiskjálfi, reykháfar
hrundu og húsgögn og innan-
stokksmunir ultu um og brotnuðu.
Jörðin sjálf engdist sundur og
saman eins og í krampateygjum.
Gínandi hyldýpisgjár opnuðust í
götunum.
Þessi jarðskjálfti, sem valdið hef-
ur mestum skaða í sögu Banda-
ríkjanna, reið yfir San Francisco
með ógnarafli miðvikudaginn 18.
apríl klukkan 5.13 að morgni.
Sterkustu kippirnir stóðu í 48
sekúndur, en mönnum fannst þeim
aldrei ætla að linna. Síðan komu
minni kippir öðru hverju allan
daginn og lögðu byggingar í rúst-
ir, slitu háspenntar rafmagns-
leiðslur og gasleiðslur og veltu um
koll heilum járnbrautarlestum.
Jarðskjálftinn heimsótti fleiri
héruð í Kaliforpiu. Hans varð
vart á 400 kílómetra löngu svæði
meðfram Kyrrahafinu. Hann virt-
ist fylgja hinu svonefnda San
Andreas jarðfalli, sem er eldgöm-
ul jarðsprunga. Jarðvegurinn lyft-
ist meira en einn metra og færð-
ist til hliðar um 2.7 metra til jafn-
aðar. Stærðar tré, sem uxu í jarð-
fallinu, brotnuðu eins og eldspýtur.
íbúðarhús og útihús slitnuðu sund-
ur í miðju og í vegina komu ótal
sprungur.
Þær byggingar í San Francisco,
sem voru með stálgrind og reistar
á traustum grunni, rugguðu fram
og aftur, en féllu þó ekki. Eins var
með byggingar úr járnbentri stein-
steypu. En á fáeinum ægilegum
sekúndum kom í ljós ótraustleiki
ýmsra sambygginga og annarra,
sem byggðar voru af hinum og öðr-
um bygginga-spekúlöntum„ Ráð-
húsið, sem hafði kostað 7 milljónir
dollara, hrundi til grunna og dóm-
höllin, ásamt fangelsi borgarinn-
ar, laskaðist stórkostlega. Fang-
arnir héldu að verið væri að reyna