Dvöl - 01.07.1946, Blaðsíða 53
D VÖL
135
greip allt starfsfólk safnsins, og
það fór þess á leit, að múmían
yrði flutt burt. Stjórn safnsins lét
þá flytja múmíuna á afvikinn
stað, en setja upp í stað hennar
nákvæma eftirlíkingu. Amerískur
fornleifafræðingur uppgötvaði þó
brátt þessi skipti og fór fram á
það að fá hina réttu múmíu og
flytja hana með sér til Ameríku,
og var honum veitt það.
Nokkrum dögum seinna lauk
með öllu hinum undarlegu fyrir-
bærum í sambandi við kóngsdótt-
urina, sem nú var á leið til Ame-
ríku. Hún hvílir nú á botni At-
lantshafsins, á^samt ölluim þeim
farþegum, sem urðu henni sam-
skipa vestur um hafið, því að skip-
ið fórst með öllu, sem á því var.
— Hvaða skip var það? ....
Titanic hét það.
Nobelsverðlaunaskáldið 1946.
Nobelsverðlaunin í bókmenntum hafa nýlega verið' veitt, en það er
gert síðla hvert haust. Að þessu sinni hlaut þau þýzkur maður, sem
lítt er kunnur hér á landi. Hann heitir Hermann Hesse, og er nú
búsettur í- Sviss.
Hermann Hesse er fæddur 2. júlí 1877 í Wurtlenberg í Þýzkalandi.
Hann var sonur ritstjóra trúfræðirits nokkurs. Pyrst framan af ár-
um hneigðist Hesse mest að tæknilegum viðfangsefnum, en gerðist
síðan bóksali í Basle. Þar beindist hugur hans að bókmenntasögu og
listfræði, og kynnti hann sér þær greinir nokkuð.
Árið 1912 íluttist hann til Sviss og hefur búið þar síðan. Framan
af árum ritaði hann oft undir nafninu Hermann Lauscer. Fyrsta
skáldsaga hans, er verulega athygli vakti nefndist Peter Camenzind
og kom út árið 1903. Síðar skrifaði hann sögurnar Demian (1919)
Siddhartlia (1912) og Der Steppenwolf (1927) og kennir þar áhrifa
frá Destojevsky, austurlenzkum trúarbrögðum og sálkönnunarkenn-
ingum Freuds.
Hesse er einnig djúpvitur ritgerðahöfundur (essayisti) og frábær-
lega snjall smásagnahöfundur, og hafa komið út eftir hann ágæt
smásagnasöfn. Hann er einnig ágætt ljóðskáld, og hafa ljóð hans
veriö þýdd allmikið á önnur mál s.s. sænsku. — Magnús Ásgeirsson
hefur þýtt a. m. k. eittt ljóð eftir Hesse á íslenzku.
í næsta hefti Dvalar mun birtast smásaga eftir Hesse, ásamt mynd
af honum og allýtarlegri grein um hann og verk hans.
*
John Steinbeck.
höfundur framhaldssögunnar, sem hefst á næstu síðu, er lesendum
Dvalar svo kunnur, að varla mun þurfa að kynna hann. Dvöl hefur
áður birt eftir hann söguna Litli Rauður og fleiri smásögur. Sagan
Bjarnar-Jói er ein af beztu smásögum hans, bráösnjöll, sérkennileg
og skemmtileg.