Dvöl - 01.07.1946, Side 20

Dvöl - 01.07.1946, Side 20
162 tIVÖL Hvort á meira sjálfsvald — karl eða kona? UNDIR BORÐUM Þetta skeði í Indlandi. Brezkur embættismaður og kona hans höfðu boðið nokkrum kunningjum til miðdegisverðar. Þau sitja í rúm- góðri borðstofunni ásamt gestum sínum, sem eru liðsforingjar úr hernum, starfsfólk sendisveitar- innar og amerískur náttúrufræð- ingur á rannsóknarferðalagi. Gólf- ið er úr marmara og ekkert teppi á því. Loft stofunnár er með sperrum og bitum, og glerhurðin út á svalirnar er opin. Fjörugt samtal á sér stað milli ungrar stúlku, sem heldur því fram, að kvenfólkið nú á dögum sé vaxið upp úr því að hljóða, þegar það sér mús, og hershöfðingja eins, sem heldur hinu gagnstæða fram. Hershöfðinginn segir: — Kon- unni er það eiginlegt að hljóða, þegar hættu ber að höndum. Það geta að vísu komið fyrir þær stundir í lífi karlmanns, að hann langi til að æpa, en þá á hann yfir að ráða því sjálfsvaldi, sem konuna skortir, og stillir sig. Hinn ameríski gestur blandar sér ekki í þessa deilu, heldur fylgist þegjandi með henni af at- hygli og gefur gætur að öllu, sem fram fer í kringum hann. Allt í einu tekur hann eftir því, að svip- ur húsmóðurinnar breytist skyndi- lega. Hún fölnar og starir fram fyrir sig, og ofurlitlir kippir fara um andlitið. Með ofurlítilli hand- hreyfingu bendir hún hinum inn- fædda þjóni, sem stendur oak við stól hennar, að tala við sig. Hann hallar sér að henni, og hún hvíslar einhverju í eyra hans. Þjónninn hvessir augun og gengur svo hratt en hljóðlaust út úr stofunni. Ameríkumaðurinn er hinn eini meðal gestanna, sem hefur veitt þessu athygli, og hann einn sér, að þjónninn kemur inn aftur og setur skál með mjólk í út á sval- irnar, rétt utan við opnar dyrnar. Honum verður hverft við, þegar sannleikurinn rennur upp fyrir honum. í Indlandi getur mjólkur- skál, sem sett er þannig frá sér, aðeins táknað eitt — agn fyrir slöngu. Honum verður ljóst, að það er kobraslanga inni í stofunni. Hann lítur upp á loftbitana r— venjulegasta staðinn — en þar er ekkert að sjá. Þrjú horn stofunnar eru auð, og í hinu fjórða stendur þjónustufólkið. Og þá er ekki lengur um að villast — slangan hlýtur að vera undir borðinu.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.