Dvöl - 01.07.1946, Side 38

Dvöl - 01.07.1946, Side 38
180 D VÖL þá má ég nú ekki gleyma þeirri grísku í Aþenu, og blómarósunum tveim í Port Said. Þær tilbiðja mig allar. Ég er heldur ekki alveg sak- iaus af greifadóttur einni í Kol- ombó og norskri stúlku í Singa- pore, og mér er ómögulegt að muna, hvort þær eru fjórar eða fimm í Shanghai. Já, og svo auð- vitað í Japan .... — Bíddu nú hægur, sagði Sílas, — Ég hélt að þú heíoir siglt þér til heilsubótar? — Og svo þekki ég rússneska stúlku í Hong Kong, og hún hefur látið tattovera á sig skjaldböku .. . — O, jæja, það finnst mér nú ekkert merkilegt heldur. Hérna niðri á Svaninum var þjónustu- stúlka með gauk eða eitthvaö þess háttar tattóverað á sig .... — Já, þaö var einmitt gaukur, sagði Kosmó frændi. — Ég ætti að vita það, því að það var ég, sem fékk hana til að láta gera það. Henni líkaði vel við mig. Já það var einmitt gaukur. Þess vegna höfðu þeir það alltaf til orðs hérna, að gaukurinn sæist fyr í Harling- ton en annars staðar í Englandi. Sílas frændi lét sér fátt um finn- ast. Hann drakk hugsandi langan teyg af glasi sínu, rýndi rauðum augum sínum upp í loftið og var alltaf jafn efagjarn og meinfýs- inn á svipinn. Og þegar Kosmó frændi fór aö segja honum frá tveim nunnum í Bologna, baunaði Sílas á hann mergjaðri hneykslis- sögu um aðventista í Skagness. Og þegar Kosmó frændi sagði frá þvi, að franskur eiginmaður hefði eitt sinn komið að sér á náttskyrt- unni einni, stillt sér upp viö vegg og otað að sér marghleypu, gróf Sílas upp gamla sögu um það, að skógarvörður einn í Bedfordshire hefði eitt sinn blásið af honum hatt inn með skoti úr tvíhleyptri byssu. Því svipmeiri sem frásögn Kosmó frænda varð, því minnisbetri varð Sílas frændi á merkilega atburði úr lífi sínu. — Hef ég nokkurn tímann sagt þér frá vikunum þrem, sem ég dvaldi í Arles hjá frönsku greifafrúnni? sagði Kosmó frændi. — Nei, sagði Sílas, en hef ég nokkurn tímann sagt þér frá mán- uðinum, sem ég dvaldi hjá hertoga- dótturinni í Stoke Kastle? Hinni hávelbornu Súsönnu, þú manst þó eftir henni? — Ja, hvað er annars langt síð- an? — Það var veturinn níutíu og þrjú. Þú hlýtur að muna eftir henni. Hún ók alltaf til Harling-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.