Dvöl - 01.07.1946, Page 43

Dvöl - 01.07.1946, Page 43
D VÖL 185 við. Þaö var skrítið, hún hafði aldrei fengið að vita af hvaða presti myndin var, sem hékk yfir orgelinu við hliðina á litprentuð- um loforðum heilagrar Margrétar Maríu, A1 asoque. Hann hafði ver- ið vinur föður hennar í skóla. Þeg- ar hann sýndi gesti myndina sagði hann tjáningarlaust: „Hann er núna í Melbourne“. Hún hafði samþykkt að fara, yfirgefa heimili sitt. Var það skyn- samlegt? Hún reyndi að vera rétt- lát í dómi sínum. Hér heima hafði hún þak yfir höfuðið og mat, og hér voru þeir sem hún þekkti frá því hún fyrst mundi eftir sér. Hún hafði mikið að gera bæði heima og í verzluninni. Hvað mundu þær segja í búðinni þegar þær fréttu að hún hefði strokið með strák? Ef til vill að hún væri gift og að einhver sem auglýst væri eftir kæmi í hennar stað. Ungfrú Gavan yrði glöð. Hún hafði alltaf haft horn í siðu hennar einkum ef fólk var nálægt. „Ungfrú Holl, sjáið þér ekki að frúrnar bíða?“ „Reynið þér nú að vera vakandi ungfrú Holl.“ Hún myndi ekki gráta yfir að fara úr búðinni. í nýjum heimkynnum, í ókunnu landi myndi allt verða öðruvísi. Þá myndi hún vera gift — hún Eveline. Fólk myndi bera virðingu fyrir henni. Það myndi ekki verða farið með hana eins og farið var með móður hennar. Jafnvel enn- þá, þótt hún væri orðin nítján ára, óttaðist hún stundum illskuköst föður síns. Hún fékk oft hjartslátt þegar hún heyrði í honum. Þegar hún var yngri hafði hann aldrei ráðizt á hana eins og Ernest og Harry, en undanfarið hafði hann byrjað að hóta henni og sagði að hann vægði henni aðeins vegna móður hennar sálugu. Og nú verndaði enginn hana meir. Ernest var dáinn og Harry, sem vann við kirkjuskreýtingar var oftast úti á landi. Þar atf auki var hún orðin dauðþreytt á þessu sífellda jagi um peninga á laugardagskvöld- unum. Hún lét hann fá allt kaup sitt — sjö shillinga — og Harry sendi það sem hann gat misst, erfiðast var að fá peninga hjá föður hennar. Hann sagði að hún eyddi peningunum í óþarfa og hún hefði ekkert vit á peningum og að hún fengi ekki aura hjá sér til að henda út á götu, hann hefði nóg með að vinna fyrir þeim, og margt annað, því venjulega var hann auga-fullur á laugardagskvöldum. Loksins fékk hún þó peningana hjá honum og var spurð hvort hún ætlaði sér ekki að kaupa fyrir þá í sunnudagsmatinn. Svo hljóp hún út og flýtti sér eins og hún gat að ná í búð, hún hélt á leðurbuddunni i hendinni og olnbogaði sig gegn um ösina í búðunum og kom ekki heim fyrr en seint, þreytt og ör- magna. Það var erfitt að sjá um húshaldið, hún varð að sjá um að

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.