Dvöl - 01.07.1946, Side 45

Dvöl - 01.07.1946, Side 45
DVÖL 187 sett upp hatt móður hennar, til að shemmta krökkunum. Hún mátti ekki sitja svona leng- ur, en þó sat hún áfram við glugg- ann og hallaði höfðinu upp að glöggatjöldunum og fann veikan þef af rykugum dúkunum. Um- ferðaspilari spilaði einhvers staðar í götunni. Hún kannaðist við hljómana. Það var skrítið, að hún skyldi heyra sama lagið þetta kvöld, það var sama lagið, sem spilað var þegar hún lofaði móður sinni að reyna að halda heimilinu saman eins lengi og hún gæti. Hún mundi eftir seinasta kvöldinu, sem móðir hennar lifði. Hún var aftur stödd í litla herberginu við hliðina á forstofunni og hún heyrði ítalskt lag spilað fyrir utan. Þetta sama lag. Umferðaspilaranum hafði verið skipað að hypja sig burt og hent í hann nokkrum aur- um. Faðir hennar hafði rigsað inn í herbergið og sagt: „Helvítis tatarinn, að þvælast hér“. Hún hugleiddi lífið, sem móðir hennar hafði lifað og hún gat ekki losað sig við þessar ömurlegu sýn- ir. Þessu lífi, sem var fórnað fyrir smámuni. — Hún skalf þegar hún heyrði móður sína endurtaka í brjálæðislegum ákafa: „Derevann Seraum! Derevann Seraum!“ Hún reis óttaslegin á fætur. Flýja! Hún varð að flýja! Frank myndi bjarga henni. Hann myndi þyrma henni við slíku lífi, og ef til vill elska hana líka. Hún vildi lifa. Hvers vegna ætti hún að vera óhamingjusöm? Hún átti rétt á að vera hamingjusöm. Frank myndi faðma hana að sér. Hann rnyndi bjarga henni. Hún stóð í iðandi manngrúan- um við Norðurvegginn. Hann hélt í höndina á henni og hún vissi að hann var að tala við hana, hann var að tala um ferðina og endur- tók það aftur og aftur. Stöðin var brún af hermönnum, með brúnan farangur. — Hún sá svartan skrokk skipsins gegnum hafnar- skýlin, það lá við hafnargarðinn og ljósin skinu út um kýraugun. Hún svaraði engu. Hún fann að hún var föl og henni var kalt. Hún bað til guðs, að leiðbeina sér í örvæntingu sinni, hvaða leið hún ætti að velja, til að gera skyldu sína. Skipið blés draugalega í þokunni. Ef hún færi, þá yrði hún úti á hafi á morgun með Frank, á leið til Buenos Ayres. Það var búið aö skrifa þau. Gat hún hætt við að fara eftir allt það sem hann hafði gjört fyrir hana? Hún fann til ógleði, varir hennar bærð- ust í heitri bæn. Bjölluhljómur, hún kipptist við. Hún fann að hann tók í höndina á henni. „Komdu!“ Það var eins og öll höf veraldar þrýstust að brjósti hennar. Hann

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.