Dvöl - 01.07.1946, Side 54

Dvöl - 01.07.1946, Side 54
196 D VÖL Framhaldssaga: BJARNAR—JÓI Eftir John SteinbecJc Þorpið Loma stendur, eins og nafnið bendir til, á lágri, ávalri hæð, sem rís éins og eyja á flatlendinu í mynni Salinasdalsins í Mið-Kali- forníu. Norðan og austan við þorpið breiða sig svartir flóar um langa vegu, en að sunnan er búið að ræsa fram fenin. Gróskumikið garð- land hefur náðst þar til ræktunar, svart land og áburðarrkt, svo kál- metið verður þar risavaxið. Eigendur fenjanna í norðurátt fóru að ágirnast hina svörtu, frjóu mold. Þeir tóku sig saman og stofnuðu ræktunarfélag. Ég vinn hjá fyrirtækinu, sem tók að sér framræsluna hjá þeim. Hin fljótandi skurð- grafa kom, var sett saman og fór að eta sig gegnum fenið. Fyrst reyndi ég að búa í skúrnum á flekanum, ásamt áhöfninni, en mývargurinn, sem sveimaði í mekki yfir skurðgröfunni og hin myrka, eitraða þoka, sem læddist með jörðinni utan úr fenjunum hvert kvöld, rak mig til Loma-þorpsins, og leigði ég mér þar hið ömurlegasta her- bergi, sem ég hef séð, hjá húsfrú Ratz. Ég hefði getað leitað víðar fyrir mér, en stóðst ekki þá freistingu að láta senda pöstinn minn til frú Ratz. Þar að auki svaf ég aðeins í þessu snauða og kalda herbergi, en mataðist í eldhúsinu í verkamannaskálanum á flekanum. í Loma eru aðeins tvö hundruð manns. Meþódistakirkjan stendur á hæðinni, sem hæst ber, og sést turn hennar í margra mílna fjarlægð. Tvær matvörubúðir, ein járnvöruverzlun, gamalt frímúrarahús og Buffalóvínstofan eru hinar opinberu byggingar. í brekkunum standa litlu timburhúsin, sem almenningur býr í og á frjósömu sléttlendi til suöurs eru hús jarðeigenda, flest umkringd litlum görðum, sem lima- girðingar skýla fyrir nöprum næðingunum. í Loma var ekkert við að vera á kvöldin annað en fara á vínstofuna, sem var í gömlu timburhúsi með skellihurð og gangstígum úr tré um- hverfis. Hvorki bannlög, afnám banns né annað hafði haft áhrif á við- skiptin þar, gestina né gæði vínsins. Minnst einu sinni á kvöldi kom allt karlkyn í Loma, eldra en fimmtán ára, í Buffalóvínstofuna, fékk sér glas, skrafaði nokkra stund og fór svo heim. Feiti Karl, gestgjafinn, heilsaði öllum nýjum gestum með kulda-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.