Dvöl - 01.07.1946, Síða 56

Dvöl - 01.07.1946, Síða 56
198 DVÖL andi voð, þá fannst þér, er þú opnaðir skellihurðina hjá Feita Karli, •sást mennina sitja þar og Karl koma á móti þér, að þetta vera ágætis staður. í annað hús var ekki að venda. Menn spiluöu þar mjög meinlausan póker. Timothy Ratz, leigusali minn, lagði kabal og hafði hressilega rangt við, því að hann fékk sér ekki staup nema þegar spilið gekk upp. Það hef ég séð hann leika fimm sinnum í röð. Þegar hann vann, stokkaði hann spilin nettlega, lagði þau frá sér og gekk virðulega að drykkjarborðinu. Feiti Karl, sem búinn var að hálffylla glas áður en hann kom, spurði: „Hvað viltu“? „Viský“, anzaði Timothy alvarlega. Þarna sátu menn frá bændabýlunum og úr þorpinu á hörðum stól- unum eða stóðu upp við slitið borðið. Venjulega skröfuðu menn í hljóði, nema þegar kosningar eða hnefaleikar stóðu fyrir dyrum, en þá mátti heyra ræðuhöld og háværar deilur. Mér var alltaf illa við að fara út í rakt myrkrið, heyra í fjarska gang- hljóð skurðgröfunnar og rölta svo heim í ömurlega herbergið mitt hjá frú Ratz, Skömmu eftir að ég kom til Loma, komst ég í kynni við Mae Romero, laglega, hálfmexikanska stúlku. Á kvöldin gengum við stundum niður í Suðurhlíðina, þar til þokan hrakti okkur heimleiðis. Eftir að ég fylgdi henni heim, fór ég í vínstofuna. Kvöld eitt sat ég þar og spjallaði við Alex Hartnell, sem átti laglega, litla jörð. Við vorum að tala um silungsveiðar, þegar útihuröinni var hrundið upp. Þögn varð í stofunni og Alex hnippti í mig. „Þetta er Bjarnar-Jói,“ hvíslaði hann. Ég leit við. Viðurnefnið lýsir honum betur en ég fæ gert. Hann líktist stórum, heimskum, brosandi birni. Svartur, úfinn hausinn hjó fram í gráðið og langir handleggir löfðu niður, eins og honum væri eiginlegt að beita fjórum fótum, en léki það sem list að standa uppréttur. Fótleggirnir voru stuttir og bognir, en fæturnir einkennilega breiðir. Hann var í bláum vinnufötum og berfættur. Ekki var að sjá, að fætur hans væru vanskapaðir, en þeir voru eins breiðir og þeir voru langir. Hann stóð í dyrunum og svinglaði handleggjunum, eins og fábjána er vani. Um andlitið lék fíflslegt gleðibros. Svo kom hann inn og þótt hann væri stór og luralegur, virtist hann læðast. Hann hreyfði sig ekki eins og maður, heldur eins og dýr, sem laumast í myrkri. Við borðið nam hann staðar og leit smáum, glápandi augum af einum á annan og spurði: „Viský?“ í Loma voru menn ekki útausandi. Fyrir gat komið, að maður keypti

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.