Dvöl - 01.07.1946, Blaðsíða 58

Dvöl - 01.07.1946, Blaðsíða 58
200 D VÖL smátt litu menn af Bjarnar-Jóa og á mig, og þeir glottu. Ég vissi, að ef ég reyndi að þagga niður í honum, mundi ég lenda í áflogum, svo áfram var haldið að leikslokum. Þegar yfir lauk, var ég innilega glaður yfir að Mae Romero skyldi ekki eiga bræður. Hvílík endemis hræsni og bersýni- legt tál var það ekki, sem Bjarnar-Jói hafði farið með. Loks stóð hann upp og brosti enn sínu heimska brosi, þegar hann sagði aftur. „Viský?“ Ég held, að allir viðstaddir hafi kennt í brjósti um mig. Þeir hættu að horfa á mig og töluðu saman af miklum ákafa. Bjarnar-Jói fór inn í horn, skreið undir kringlótt spilaborð, hnipraði sig saman eins og hundur og sofnaði. ^ Alex Hartnell horfði samúðarfullur á mig. „Er þetta í fyrsta sinn, sem þú heyrir til hans?“ „Já, hver fjandinn sjálfur er hann?“ Alex anzaði ekki strax spurningu minni. „Ef þú hefur áhyggjur af mannorði Mae, skaltu sleppa þeim. Bjarnar- Jói hefur fyr elt hana.“ „En hvernig heyrði hann til okkar. Ég sá hann hvergi.“ „Enginn sér eða heyrir Bjarnar-Jóa, þegar hann er í þessum erindum. Hann ber sig um án þess nokkur hreyfing sjáist. Veiztu hvað ungu pilt- arnir hérna gera, þegar þeir fara út meö stúlku? Hafa með sér hund. Hundar eru hræddir við Jóa og finna lyktina af honum.“ „En herra minn trúr! Þessar raddir-------“ Alex kinkaði kolli. „Já, við skrifuðum háskólanum nokkrir saman um Jóa, og þeir sendu hingað sálfræðing. Hann athugaði Jóa og sagði okkur svo frá Blinda Tuma. Hefirðu heyrt hans getið?“ „Þú átt við svarta slaghörpuleikarann? Já, ég hef heyrt hann nefndan.“ „Einmitt. Blindi Tumi var fábjáni. Hann var naumast talandi, en hann gat haft eftir allt, sem hann heyrði leikið á slaghörpu, þó það væru löng tónverk. Þeir reyndu hann á verkum snillinga og hann lék ekki aðeins lögin eftir þeim, heldur líka persónulegar áherzlur. Til að villa um hann gerðu þeir smá mistök, og hann lék mistökin eins. Hann endurvarpaði leik þeirra út í yztu æsar. Maðurinn sagði, að eins væri þetta með Bjarnar-Jóa, nema hvað hann endurvarpar orðum og röddum. Hann reyndi Jóa á langri klausu á grísku og Jói hafði hana hárrétt eftir. Hann skilur ekki orðin, sem hann fer með, hann flytur þau bara. Hann hefur ekki greind til að setja neitt saman sjálfur, svo þú getur verið viss um, að það sem hann segir, hefur hann heyrt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.