Dvöl - 01.07.1946, Síða 63

Dvöl - 01.07.1946, Síða 63
D VÖL 205 til Flateyjar gyllti sólin og lognið allar leiðir út fjörðinn, en örlítinn vestan gráða lagði á, þegar heim var haldið með hlaðið skipið úr kaupstaðnum, svo tekið var „til siglu og fannhvít voðin dregin að hún.“ Hásetar lögöu inn árar og létu sig dreyma dagdrauma meðan fleytan bar þá inn hinn sumarfagra Breiða- fjörð. — Óefað eru svona lýsingar réttar svo langt sem þær ná. En svona gengu Flateyjarferðirnar ekki alltaf á þessum slóðum. — Norðri átti það til, að blása á móti ferðamönnunum þegar þeir höfðu lokið erindum sínum í kaupstaðnum og tefja för þeirra svo um munaði — stund- um viku stundum lengur — þó valinn maöur væri við hverja ár. Var þá helzta ráðið að sæta sjávarföllum. Leggja af stað úr Flatey þegar „tók“ í Hafnarsund- inu og berja inn undir Hrólfsklett (sem mynd er af í bókinni, en þar ranglega nefndur Hafraklettur), sigla þaðan suður undir Svefneyjar og halda síöan inn með eyjum meðan þeirra naut viö, en bíða síðan við flóann, í Hvallátrum eða Skál- eyjum, þar til garðinn lægði. Það voru stundum erfiðar ferðir og óliægar — ekki sízt ef mjölsáldrið ;:em kaupmaðurinn lánaði hafði vöknað, og var orðið hálf ónýtt þegar heim kom. — En, „Endurminningin merlar æ á mánasilfri hvað, sem var, yfir hið liðna bregður blæ blikandi fjarlægðar." — Og góðra manna háttur er það, að halda því frekar á loft sem gott er og bjart yfir í endurminningunni en hinu, sem skugga bregður á bjartan dag. — En þó mikið sé um sumardaga og sunnan þey í bók Guðjóns, svo sem vænta mátti, þá bregður þó öðru fyrir. — — Þrír menn leggja upp á Þorskafjarð- arheiði um hávetur. Þeir hreppa hríðar- byl. Við fáum fregnir af því, hvernig tveir þeirra helfrjósa úti á hjarninu. En sá sem heim komst til byggða og sagði frá tíðindum, leið mestar kvalirnar og sárastan dauða. — — Lítill drengur týndist og finnst ekki í langri leit. Seinna finnst tærð beina- grind í árgljúfri fram til fjalla. Þar heimta foreldrarnir barnið sitt. — Skin og skuggar skiptast á í hverri sögu, sé hún rétt sögð. — Það er ekki lítill menningarsöguleg- ar fróðleikur, sem Guðjón og hans líkar hafa dregiö á land með ritstörfum sín- um á elliárum, og er verk þeirra varla metið að verðleikum. Og náma verða bækur þeirra lærðum mönnum, sem síðar vilja skrifa um þetta efni lærðar bækur. Bók Guðjóns Jónssonar er ekkert „lærð.“ Hún er alþýðleg í bezta máta. Mér þótti gaman að lesa hana, og svo mun hafa verið um fleiri Barðstrendinga. Og ég vona að Guðjón láti ekki við svo búið sitja. Óefað geymir hugur hans enn margt úr byggðum Breiðafjarðar, sem gott væri að ekki færi í gröfina með honum. Og sama snyrtimennskan ein- kennir ritstörf hans og búskapinn forð- um. Sóðaskapur fyrirfinnst þar enginn. — Nokkrar myndir eftir Þorstein Jóseps- son prýða bókina. Bergsveinn Skúlason. Jón úr Vör. ÞorpiS. Ljóöaflokkur. Reykjavík 1946. Haustið 1937, fyrir níu árum, kemur út fyrsta ljóðabók Jóns úr Vör. „Ég ber að dyrum,“ lítil bók með athyglisverðum kvæðum ungs verkamanns. Þau vekja strax mikla eftirtekt, hljóta góða dóma, og eru þegar sama ár prentuð í annarri útgáfu. Á feröinni er auðsjáanlega mað- ur, sem ekki yrkir út í bláinn eða af einskærri hagmælsku, heldur gerir alvar- lega tilraun og nær árangri. Skömmu síðar siglir þessi ungir maður til náms í Svíþjóð og ferðast einnig víöar um, allt til Suður-Evrópu; snýr síðan heim aftur.

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.