Dvöl - 01.07.1946, Side 64

Dvöl - 01.07.1946, Side 64
206 DVÖL Um þær mundir eru viðsjár miklar í álfunni, enda brýst síðari heimsstyrjöld- in út, skömmu eftir að Jón er kominn til íslands. Þessir atburðir setja líka sinn svip á aðra bók hans, sem hann vinnur að á þessum árum. bók, er hann nefnir „Stund milli stríða“ og sendir frá sér ár- ið 1942. í þeirri bók er auðsæ framför frá hinni, enda þótt menn greini á um þaö. Höfundurinn er að þreifa fyrir sér á erf- iðri leið og á erfiðum tímum. Svo líöa nokkur ár. Og nú er þriðja bók hans komin á markaðinn. Það er ljóðaflokkur, er hann nefnir látlausu nafni: „Þorpið.“ í bók þessari eru 41 ljóð, fersk og einlæg, mjög nýtízkuleg, svo að ýmsum mun án efa finnast nóg um. En hvað um það, í þess- um ljóðum kemur Jón úr Vör gleggra fram en nokkru sinni fyrr sem þroskaö skáld, er hefur vald á efninu, setur það í hugljúfan, einfaldan búning, sem hrif- ur lesandann. Það er kannske of mikið sagt, að hann slái nýjan streng í ljóða- 'gerö sinni þrátt fyrir frumlegan búning, því jafn tilgeröarlaus og einlægur hefur hann alltaf verið í framsetningu Ijóða sinna. En það sem fyrir er tekið, hvort heldur það er nú endurminningin um jólin eða ævi gamalmennisins, hefur hér fyllri mynd og áhrifaríkari að jafnaði en nokkru sinni áður í ljóðum Jóns. Hann hefur tekiö sér fyrir hendur að yrkja um Þorpið, og honum hefur tekizt það vel, enda engin furða. Þarna yrkir hann um heimahaga sína og fólkið, sem hann hefur alizt upp hjá. Þó er lesand- anum bezt að taka ekki alla hluti of bókstaflega, en því hættir jafnvel greind- asta alþýðufólki á íslandi til á stundum. Ég efast nefnilega um það, að hann myndi svara því játandi, ef hann væri spurður, hvort þessi ljóð væru „um hann sjálfan." Sem dæmi úr bókinni leyfi ég mér að taka eitt kvæðið, er nefnist „Stóri- steinn." Við gráan stein fyrir austan túngarðinn undum við glöð, reittum blöðkur og grös og höfðum fyrir hey og vorum jafnvel aö hugsa um að veröa álfar og búa í steini. En við uröum stór, fórum út í heim eða bjuggum alla okkar daga í sömu byggð. Og börnin kalla steininn alltaf Stóra- stein. Okkur finnst hann muni hafa sokkiö hálfur í jörð, en líklega hefur hann aldrei verið stærri en þetta. Þetta kvæði, sem fyrst og fremst er valið hér sökum þess að það er stutt, sýnir vel hið einfalda, látlausa form og uppsetningu, sem er styrkleikur Jóns úr Vör sem ljóöskálds. Mér þykir mikið, ef ráðandi menn heima á íslandi sýna þaö ekki í verki nú, sem fyrr hefði mátt vera, að þeir skilji, að Jón úr Vör er eitt af athyglisverðustu skáldum okkar. Á síðustu missirum, va. m. k. ekki síöan Snorri Hjartarson sendi frá sér „Kvæði“ sín, hefur varla komið á íslenzkan bóka- markað eftirtektarverðari ljóðabók ný en þessi. Kbh.. 3. nóv. 1946. Elias Mar. Sjómannaútgáfan: Hvirfilvindur eftir Joseph Conrad. Ævintýri í Suðurhöfum eftir Edgar Allan Poe. Indíafarinn Mads Lange eftir Aage Krarup Nielsen. Worse skipstjóri eftir Alexander Kielland. Það er ætíð lofsvert, þegar gerð er til- raun til þess að gefa út fyrir almenning

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.