Dvöl - 01.07.1946, Side 66

Dvöl - 01.07.1946, Side 66
208 ÖVÖL DVÖL Stöðugt berast Dvöl fyrirspurnir um það, hvort ekki sé hægt að fá Dvöl alla frá byrjun. Er ljóst, að marga fýsir að eignast Dvöl alla, þótt þeir hafi ekki tek- ið ráðið í tíma, enda er það alls ekki að furða, þar sem óhætt mun að fullyrða, að Dvöl sé stærsta og bezta safn erlendra smásagna, sem til er á íslenzku. Þvi mið- ur veröur alltaf að svara þessum spurn- ingum neitandi. Dvöl er ekki til frá byrfun. Upplag hennar hefur jafnan verið nokkuð takmarkað og miðað við kaup- endatölu, sem alltaf hefur verið að auk- ast, og reynt hefur verið að láta nýja kaupendur sitja fyrir eldri árgöngum, ef þeir hafa óskað og til hafa verið. - höfundur og fræðimaður sem hefui' sér- staklega lagt stund á að kynna sér líf sjómanna fyrr og síðar, og samið merk ritverk um þau efni. Útgáfa þessara bóka er svo látlaus, smekkleg og vönduð að af ber. — Þessi útgáfa er menningarviðleitni, sem á stuðning skiliö. A. K. Þó er nú til allmikið af eldri Dvöl eða a. m. k. um 130 arkir alls, en þaö eru i meira en tvö þúsund blaösíður. í þessu eru nokkuð á þriðfa hundrað smásögur, auk margvíslegs annars efnis. og má það teljast álitlegt smásagnasafn, og eru þar í sögur eftir flesta frægustu smásagna- höfunda heimsins. Nu hefur verið ákveö- iö aö bjóða þeim, sem þess óska að eign- ast þetta, sem til er af Dvöl fyrir kr. 50,00 burðargjaldsfrítt sent gegn póst- kröfu. Eru þetta hin beztu bókakaup og ætti að koma að fullum notum, þótt ekki sé allt saman samstæðir árgangar, þar sem þetta eru mestmegnis sundurlausar smásögur. Er nýjum kaupendum einkum bent á þessi kostakjör, og þeir, sem hafa hug á áð reyna að eignast Dvöl alla, ættu ekki að láta undir höfuð leggjast að ná í það, sem til er af Dvöl meðan til er, því að seinna getur ef til vill gefizt færi á að fylla í skörðin og fá það, sem vantar. Sendið dvöl nafn yðar og heimilsfang, ef þér viljið notfæra yður þetta boð, og yður mun verða sent það gegn póstkröfu. TÍMAKITIÐ DVÖL kemur út í fjórum heftum á ári, eitt hefti á liverjum árs- fjórðungi. Það flytur lesendum sínum úrval þýddra smásagna, fræðandi og skemmtandi greinar um erlent og innlent efni, Ijóð og ljóðaþýðingar, frumsamdar íslenzkar skáldsögur, ritfregnir, þjóðfræðaþætti, gamansögur o. fl. Ritstjóri: ANDRÉS KRISTJÁNSSON. Ú t g e f a n d i : Dvalarútgáfan. Áskriftargjald kr. 20,00 árgangurinn. Gjalddagi 1. júní. Óskast greitt í póstávísun. Áritun: Tímaritið Dvöl, pósthólf 561, sími 2923. Prentsmiöjan Edda h.f.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.