Dvöl - 01.01.1948, Page 30
28
DVÖL
Snecky finnur stjörnur á strætinu
Eftir Colenman Milton
Á mánaskinskveldi seinast í
október hrapaði stjarna úr Vetr-
arbrautinni niður í Sauchiehall-
arstræti. Enginn tók eftir henni,
hvar hún lá, glampandi í rennu-
steinunum. Til þess var fólkið of
önnum kafið í leit sinni að spor-
vögnum og strætisvögnum. Allir
voru nú að fara í leikhúsið eða í
bíóið eða á stefnumót. Enginn
hafði tíma til að veita öðru eins
athygli sína og einni stjörnu —
sízt í annarri eins umferðargötu
og Sauchiehallarstræti.
Þannig vildi það til, að hinn
stórmerkilegi fundur var gerður af
Snecky litla Kincaid. Hann hafði
orðið sex ára síðastliðinn þriðju-
dag, en þar eð hann heyrði til
stórri fjölskyldu, sem varla hafði
ofan í sig (faðir hans var dyra-
vörður hjá Funlandsverzluninni),
átti hann ekki svo mikið sem
penny til að kaupa sér steiktar
kartöflur fyrir. Hann hafði ekki
öðru að sinna en reika um í til-
verið gefið, þegar hún var skírð.
En alltaf áður — meðan hún lifði
— hafði hún verið nefnd þessu
nafni:
Simma sálarlausa!
gangsleysi á götunum, horfa inn
um uppljómaða verzlunarglugga
og æskja sér dásamlegra muna,
sem hann myndi'aldrei geta eign-
azt. — Hann var einmitt að leika
sér að því að standa á öðrum fæti
tæpt á gangstéttarbrúninni fyrir
framan hljóðfæraverzlun þar sem
silfurlitar stjörnur voru til skrauts
á harmoníkunum, þegar hann fyrst
kom auga á stjörnuna — eða ölju
heldur, þegar stjarnan kom fyrst
auga á hann. Allt í einu varpaði
hún fagurrauðum glampa í augu
hans, þar sem hún lá umleikin
ljósunum frá bogperunni fyrir of-
an. Hann nam staðar.
— Hæ!
Svo gekk hann eitt skref aftur
á bak: en stjarnan skipti lit og
varð nú rauð sem purpuri. Eitt
skref enn aftur á bak, og nú varð
hún blá, blá eins og fiðrildið í
glugga skartgripasalans. Örlítið
til hægri — og þá var hún horfin
— Til vinstri — og enn var hún
horfin! Hálft fet aftur á bak, og
þá skein hún skærri en sólin!
Snecky leit í kringum sig til
þess að sjá, hvort nokkur tæki eft-
ir honum. Nei ekki ein sála.
Stjarnan var hans! Hann hljóp
til, þangað sem stjarnan lá, og