Hlín - 01.01.1944, Side 53
Hlín
51
næringarefnum, getur liaft þær afleiðingar, að barnið
búi að því alla æfi. — Þetta mikilsverða atriði vei'ður
hverri konu, sem er móðir, að vera ljóst, og jafnframt
það, að á herðum hennar hvílir ábyrgðin á uppeldi barn-
anna að langmestu leyti. Störf hennar sem liúsfreyja og
móðir geta því aldrei verið of vel af liendi leyst. Þau
Iieimta óskifta starfsorku hennar, allan áliuga hennar og
umhyggju, og það er því aðeins rjettlætanlegt, að hús-
móðir, sem á börn, gegni föstum skyldustörfum utan
lieimilis, að hún sje neydd til þess af fjárhagslegum
ástæðum.
Vil jeg þá fara nokkrum orðum um það, hverja þýð-
ingu það hefur fyrir þroska hinna ungu stúlkna og verð-
andi húsmæðra, að mæður þeirra Iielgi sig eingöngu
heimilisstörfum, og nær þetta jafnt til allra, hvort sem
þær alast upp í sveit eða kaupstað.
Hið fyrsta, er gefur til kynna móðurlegar tilfinningar
hjá litlu stúlkunni er það, hversu mikla ánægju hún hef-
ur af því að klæða, þvo og svæfa hrúðuna sína. Kemur
þetta venjulega í ljós á aldrinum 2—3ja ára, en eftir því
sem árunum fjölgar vilja þær þvo þvott af hrúðunni, mat-
reiða handa henni o. fl., og leita þá oft aðstoðar móður
sinnar við þessi störf. — Oft þykir móðurinni jretta vera
til tafar og óþæginda, en hún má aldrei gleyma því, að
einmitt þetta er hið rjetta og eðlilega viðfangsefni litlu
stúlkunnar, og ef henni er mögulegt að koma því við
vegna annríkis, þá ber henni að hlúa sem hest að þessurn
móðurlegu tilfinningum, og reyna að gera leik litlu stúlk-
unnar sem fjölhreyttastan og skemtilegastan. — Þær
stundir, sem móðirin ver til þessa, fær hún endurgoldnar
fyrst og fremst í ánægjunni af samvistum við barnið, og
auk þess fyr en varir beinlínis í verknaði, því að takist
henni að vekja áhuga ungu heimasætunnar fyrir heimil-
isstörfum, þá getur hún þegar á aldrinum 6—8 ára hjálp-
að móður sinni ótrúlega mikið við húsverkin,
4*