Hlín - 01.01.1960, Síða 134
132
Hlin
geymt í íshúsi, og tökum við það heim eftir þörfum, en nemend-
urnir hafa sjálfir útbúið það í fyrstinguna. — Með þessu móti
höfum við grænmeti og ber alt árið úr okkar eigin garði.
Eina skógræktarferð förum við á hverju vori. Fara þá allar
stúlkurnar eina kvöjdstund eða svo, og höfum við plantað trjám
í Vaðlaheiði, í Garðsárgili og 1000 plöntum í reit hjer heima við,
og tek jeg þá það loforð af stúlkunum, að þetta verði ekki síðasta
ferðin við gróðursetningu.
Mjer er óhætt að segja, að það er almenn ánægja með það að
fá að vera úti þessa daga, sjerstaklega að vorinu njóta stúlkurnar
þess. Mjer finst jeg ekki gæti án þess verið að hafa alt þetta góða
grænmeti, þegar skólinn byrjar. — Og ættu það ekki einmitt að
vera húsmæðraskólarnir, sem gengju á undan með leiðbeiningar,
en það verður aldrei að verulegu gagni nema eitthvert fje sje lagt
til þess frá því opinbera.
Til þess að grænmetisneysla verði almenn þurfa heimilin að
rækta grænmetið sjálf, og við skulum vona, Halldóra mín, að þeir
sem með völdin fara, fái skilning á því, að þetta er einmitt einn
liðurinn í bættu heilsufari þjóðarinnar og einn þátturinn í að
slrapa hrausta einstaklinga.
Annars alt gott að frjetta.
Frjettir úr Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu á Einmánuði 1960:
— Hjeðan úr fjelaginu okkar er það helst að frjetta, að við höfum
sjeð um starfrækslu heimilishjálpar í þrjá vetur. Höfum haft eina
stúlku í fjelagi við Aðaldæli, hefur hún haft nóg að gera, og þessi
starfsemi orðið mjög vinsæl. Við teljum margar, að það sje mesta
þarfamálið, sem fjelagið hefur beitt sjer fyrir síðustu árin.
Þessu er þannig fyrir komið hjá okkur, að starfsemin er í nafni
hreppsins og borgar hann kostnað, samkvæmt heimilishjálparlög-
um, en hreppsnefnd fól kvenfjelaginu áð annast um framkvæmd
starfseminnar.
Stúlkan, sem við höfum í vetur, heitir Þorbjörg Björnsdóttir, frá
Hólum í Laxárdal, ágæt stúlka, og er þetta annar veturinn, sem
hún er við þetta starf hjá okkur.
Hún er ráðin frá miðjum nóvember til miðs júní, og hefur í
kaup 1400 krónur á mánuði, og auk þess 60 krónur á dag, þegar
hún er í starfi. — Af þeim 60 krónum greiða heimilin 40 krónur,
on sveitarfjelagið 20 krónur.
Okkar langar til að halda þessari starfsemi áfram, en aðalvanda-
málið er að fá hæfar stúlkur til að taka það að sjer. — Jeg veit
að konur í fleiri sveitum hjer norður frá langar til að koma þessu
á hjá sjer, en hafa ekki fengið hæfar stúlkur til starfsins.