Hlín - 01.01.1960, Qupperneq 143
Hlin 141
ágæt hjer, skepnuhöld góð og lítill snjór, ekki þarf að gefa sauð-
fje hjer nema hálfa gjöf, útbeit er hjer ágæt.
Nú þegar birtir betur ætla jeg að setja upp í vefstólinn minn
og vefa, tvist í tvist.
Aí Tjörnesi er skrifað haustið 1959: — Mjer kemur alt í einu
til hugar, að þú hefðir kannske gaman af að frjetta, að hjer í sveit-
inni var stofnað kvenfjelag í haust. A Tjörnesi var eitt sinn starf-
andi kvenfjelag um nokkurt árabil, en það eru mörg ár síðan það
lagðist niður, svo þetta má kallast nýmæli hjer. — Ekki hef jeg
nú tekið þátt í þessum fjelagsskap ennþá og get því fátt frá hon-
um sagt, en mjer finst samt, að þetta muni stefna í rjetta átt, og
vildi gjarnan, að hið nýja fjelag mætti dafna sem best.
Úr Reykjavík er skrifað um nýár 1960: — Það var mikill bjarmi
yfir bænum upp úr kl. 11 á Gamalárskvöld, enda voru að sögn 70
brennur í bænum, likast því sem borgin stæði í björtu báli. —
Jeg get ímyndað mjer að Kjalnesingum hafi sýnst svo, þegar þeir
horfðu þetta kvöld til „Sódóma og Gómorra“, eða ímynd þeirra
borga beggja í hugum margra sveitamanna!
Brennurnar voru myndarlegar og alt fór vel fram. — Brennurn-
ar safna saman fólki. — Miðbærinn, þar sem hættan er altaf mest,
fríaðist.
Af Hólsfjöllum er skrifað veturinn 1960: — Veturinn líður óð-
ar en varir, það er nóg að starfa og dálítið hægt að skemta sjer
líka. Við höfum getað farið á bílum milli bæja hjer á Fjöllunum
i allan vetur. Pósturinn okkar fer vikulega milli Möðrudals og
Reykjahlíðar, og hefur altaf farið þá leið á bíl í allan vetur. —
Það er verið að smábæta við upphlöðnu vegina, þó hægt gangi
það.
Úr Laugardal í Árnessýslu er skrifað veturinn 1960: — Gaman
þótti mjer að sjá í Hlín 41. árg. frásögu Lilju Sigurðardóttur á
Víðivöllum um tjaldbúðina á Þingvöllum, þvi umrætt vor (1930)
var jeg, ásamt, að mig minnir, 10 öðrum unglingsstúlkum, á garð-
yrkjunámskeiði hjá henni á Viðivöllum.
Þar var gott og gaman að vera.
Úr Strandasýslu er skrifað veturinn 1960: — Við erum 11 í
kvenfjelaginu hjerna .— Við erum búnar að stofna hjá okkur
sauma- eða skemtiklúbb og förum þé á bæina á víxl, því engin vill
missa af því að fá konurnar til sín. — Okkur finst gaman að koma