Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Síða 64
62
jegvarið til að bæta skólana; það gjörði jeg af því,
að mig langaði til að leiða skólalýðinn af þeim glap-
stigum, er hann gengur á. Bókasafn mitt skal vera
bókanna bók, heimspeki mín sú, að jeg með Davíð.
slcoði himininn og guðs verk, og undrist, að drottinn
svo mikilla hluta lítur til mín, ormsins í duptinu.
Læknisfræðisþekking mín skal koma fram í hófsemi,
lögfræði mín 1 því, að gjöra öðrurn það, sem jeg vil,.
að þeir gjöri mjer. Sje jeg spurður um guðfræði
mína, þá mun jeg eins og Tómas Akvinas taka,
biflíunaog segjameð hjarta og munni: Jeg trúi því,
sem skrifað er í þessari bók. 011 æfi min hefur verið
pilagrímsför; ættjarðar hef jeg ekki fengið að 'njóta.,
Jeg hef orðið að flytja stað úr stað; fastan hústað
hef jegekki átt; en nú sje jeg himneska föðurlandið
í nánd.
Fram í andlát .var Comeníus sístarfandi að því,
að reyna að bæta hag manna. Ilann hafði áður
komið þvi til vegar, að biflían var prentuð á máli
Bæheimsbúa og Pólverja, og nú seinustu árin vann
hann að því, að henni yrði snúið á tyrknesku og
trúboð haflð meðal múhameðstrúarmanna. Eigi Ijet
harin heldur af því, að vinna að alfræði sinni, en
eigi fjekk hann lokiðviðhana fyrir andlát sitt. Iíann
ljezt i Amsterdam 15. nóvember 1671.
Stefna sú, er Comeníus tók í málfræðisritum,
sú stefna, að minnka málfræðisnámið, en tengja sam-
an gagnfræðanám og málnám, er að vísu svo merki-
leg eins og hann setur hana fram, að hún ein mundi
. hafa nægt, ,til að skipa honum á bekk meðal uppeldis-
fræðinga. En einkum er það þó kennslufræðin mikla,.