Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 71
69
sambúð fyrir nemendur eða samneytni má hvorki
vera í skólanum nje utan hans.
Hvernig á kennsla að vera auðveld og skemmti-
leg? Viðvíkjandi þvi gefur Comeníus þessar
reglur:
1. Náttúran byrjar á, að greina frá allt óviðlcom-
andi. Fuglinn ungar að eins út nýjum eggjum.
Menn gróðursetja helzt ung t.rje, og sjeu þau
orðin vaxin, þá skera þeir greinir þeirra og
kvisti. Snemma á lfka að byrja að mennta
barnið. Um fram allt riður á, að það venjist á
hlýðni við kennarann.
2. Náttúran býr efnið þannig undir, að það leitast
við að ná sinni álcveðnu mynd, og ákvörðun..
Fuglsunginn gleðst í hreiðri sínu, laus úr skurn-
inu, og unun hans er, að æfa sig og fullkomna..
Illa sjá þeir foreldrar fyrir börnum sínum, sem
knýja þau til að læra. Námskappið er undir
viljanum komið, og er ekki hægt að vekja það'
með kúgun. Því ríður á, að vekja námfýsi hjá
börnunum. Það eiga foreldrar og kennarar að'
gjöra, og gjöra það með ástúð og uppörvunum.
Skólastofan á að vera skemmtileg og prýdd alls
konar kennsluáhöldum. Úti fyrir þarf að vera
leiksvæði. Námsgreinarnar þurfa að vera sam-
svarandi aldri og skilningi nemanda. Kennslu-
aðferðin þarf að vera eðlileg, því að það, sem
eðlilegt er, gengur sjálfkrafa. Það þarf ekkiað
liafa mikið fyrir, að láta vatnið renna ofan
brekkurnar nje fuglinn fljúga út úr búrinu, þeg-
ar það er opnað.
Kennsluaðferðin á að fyrirbyggja leti við nám,