Morgunn - 01.06.1947, Qupperneq 49
MÓRGUNN
43
voru mjúkar og virðulegar. Áður en ég sá hann raunveru-
lega, heyrði ég rödd segja: „Hljóð! hér er faðir Ambrósíus.'1
Munkurinn kom inn í herbergið og gekk að eldstæðinu.
Þá sneri hann sér til austurs, hneygði höfuðið í bæn og
gerði með hönd sinni merki krossins. Því næst sneri hann
sér við andspænis mér og sagði: „Ég hefi víða farið, um
alla Evrópu, til þess að lækna sjúka." Hann gekk um her-
bergið, nam staðar við rúm vinkonu minnar og sagði:
„Þú hefir verið veik, en þú skalt verða hresst."
Hann hélt á marglitu glasi í hendinni, stakk fingrinum
öðru hvoru í glasið og snart vinkonu mína. Áður en hann
vék frá henni, sagði hann: „Ég stíg upp, en ljós skal ég
skilja eftir hjá þér, sem mun vísa þér veg. Drottinn blessi
þig og varðveiti þig, hann gefi þér frið.“ Sjálfur var hann
umkringdur miklu ljósi. Aftur sneri hann sér til austurs,
hneigði höfuðið í bæn og gerði merki krossins. Því næst
lyftist hann frá gólfinu og hvarf sjónum mínum hægt
upp í gegn um loftið í herberginu. Ég tók eftir því, að svefn
vinkonu minnar varð værari, andardrátturinn léttari. Mikill
friður fyllti herbergið okkar.“
Góður gestur.
Morgunn hefir þá gleðifregn að flytja að þessu sinni,
að í septemberbyrjun kemur líkamningamiðillinn danski,
hr. Ejner Nielsen, til Reykjavíkur, sem gestur Sálarrann-
sóknafélags fslands. Mun liann dvelja hér um sex vikna
skeið og halda fundi á vegum félagsins, sem margir munu
hlakka til að sitja. Ekki þarf að efa, að aðsókn að fund-
unum verði geysi mikil. Með fundum hr. Nielsens verður
hið nýja félagsheimili S. R. F. f. við Sólvallagötu 3 vígt.