Morgunn


Morgunn - 01.06.1947, Page 62

Morgunn - 01.06.1947, Page 62
56 MORGUNN er í rauninni svo, en okkur finnst a. m. k. við gera það. En þegar fólk þroskast þarf það þess ekki. Við vitum ná- kvæmlega hvað fólk ætlar að segja við okkur, þótt engin orð séu notuð. Spuming: Getur þá enginn dulið hugsanir sínar fyrir öðrum? Svar: Jú, enginn fær að vita meira en það, sem hinn vill láta uppi, þ. e. a. s. ef báðir standa á svipuðu þroskastigi. En óþroskaður maður getur engan veginn dulið hugsanir sínar fyrir sér þroskaðra manni. Spurning: Getur jarðneskur maður þá ekki dulið hugsanir sínar fyrir ykkur? Svar: NEI, þú getur t. d. ekki dulið neitt fyrir mér, þegar ég er hjá þér skynja ég hverja hugsun þína. Þér væri t. d. ekki til neins að reyna að fullvissa mig um, að þú værir glaður ef þú værir það ekki. Spurning: Hvernig fer þú að sjá það? Svar: Ég sé þig ekki eins greini- lega ef þú ert hryggur, þá er eins og dragi upp ský á milli okkar. Spurning: Ég hefi orðið þess var, að ýmsir framliðnir menn láta svo, sem þeir geti haft skemmtun af ýmsum lystisemdum, eins og t. d. tóbaki, víni, góð- Lystisemdir. um mat o. s. frv., eftir að þeir eru farnir af jörðunni. Segðu mér, er þetta sagt í gamni eða alvöru? Svar: öllu gamni fylgir nokkur alvara. Ég veit, að drykkjumenn langar mjög mikið í vín fyrst eftir viðskilnaðinn, og eins er um tóbaksmenn, þá langar í tóbak. En þessi löngun hverfur smátt og smátt. Ég held líka, að fullyrða megi, að hér geti menn fengið eftirlíkingar af þessu öllu, en þeir verða fljótt leiðir á þeim. Það muntu sanna, að eftir að hingað er komið, langar mann í margt, sem manni þótti gott á jörðunni, og þið getið vel gefið okkur með ykkur, þegar þið eruð að fara með það, sem okkur þótti áður gott. Spurning: Nú fer ég að gerast forvitinn, á hvern hátt getum við það ?Svar: Setjum svo, að þú viljir gefa okkur brjóstsykur eða annað góðgæti. Þú stingur því upp í þig og hugsar: Þetta er fyrir N. N., og þú mátt vera viss um, að þessi N. N. nýtur þess

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.