Morgunn - 01.06.1947, Blaðsíða 57
MORGUNN
51
austrænna manna í daglegu lífi þeirra. Þá má benda á það,
að samkvæmt hugmyndum Indíánanna, eru sælubústaðirnir
annars heims hin víðlendu veiðilönd, sem hugur þeirra
stefnir mjög að í daglegu lifi þeirra. Þá er kvalastaðurinn
í hugmyndum Eskimóa ekki heitur, eins og með suðrænum
þjóðum, heldur er þar nistandi frost. Þar finnum við enn
höfuðóvininn þeirra úr daglegu lífi. Þungamiðjan í öllum
þessum ólíku hugmyndum frumstæðra þjóða um dvalar-
staðinn eftir dauðann, endurspeglar jarðneskar hugmyndir
þeirra, eftirlanganir og þrár, og baráttu þeirra annars-
vegar við náttúruna. Þó má vera, að einhverjar styrkari
stoðir en í fljótu bragði er hægt að koma auga á, renni
undir þessar hugmyndir, en þekking hefi ég ekki til að
rökræða það mál nánara. 1 stað þess ætla ég að segja frá
því, sem framliðnir vinir, er ég tel mig hafa talað við,
eftir að þeir voru farnir af jörðunni, hafa sagt mér um
þann heim, sem þeir búi nú í. Ég hefi enga löngun til þess,
að við því, sem ég segi, verði tekið sem opinberun, ég veit
ekki einu sinni sjálfur, nema ég kunni að hafa misskilið
eitthvað af þv, sem mér hefir verið sagt. Því síður get ég
verið öruggur um, að eitthvað kunni ekki óafvitandi að hafa
borizt rangt frá miðlinum, en þeir, sem kunnugir eru
miðlasambandi, munu skilja þann varnagla.
Það, sem hér fer á eftir, er tekið úr óprentaðri bók
eftir mig, er það 6. kafli bókarinnar, er heitir „Spurning-
ar og svör.“
1 þessum kafla vil ég gera tilraun til að
svara nokkrum af þeim spurningum, sem
Spurningar iðulega eru lagðar fyrir þá, sem telja sig
og svör. hafa náð sambandi við annan heim. Sumir
spyrja af fróðleiksþörf en aðrir af öðrum
hvötum. Svörin eru byggð á því, sem mér hefir verið sagt,
en ég tel mig ekki hafa neinn rétt til að álíta, að þau séu
hin einu réttu. Ég býst við, að öll munum við vera sammála