Morgunn


Morgunn - 01.06.1947, Side 57

Morgunn - 01.06.1947, Side 57
MORGUNN 51 austrænna manna í daglegu lífi þeirra. Þá má benda á það, að samkvæmt hugmyndum Indíánanna, eru sælubústaðirnir annars heims hin víðlendu veiðilönd, sem hugur þeirra stefnir mjög að í daglegu lifi þeirra. Þá er kvalastaðurinn í hugmyndum Eskimóa ekki heitur, eins og með suðrænum þjóðum, heldur er þar nistandi frost. Þar finnum við enn höfuðóvininn þeirra úr daglegu lífi. Þungamiðjan í öllum þessum ólíku hugmyndum frumstæðra þjóða um dvalar- staðinn eftir dauðann, endurspeglar jarðneskar hugmyndir þeirra, eftirlanganir og þrár, og baráttu þeirra annars- vegar við náttúruna. Þó má vera, að einhverjar styrkari stoðir en í fljótu bragði er hægt að koma auga á, renni undir þessar hugmyndir, en þekking hefi ég ekki til að rökræða það mál nánara. 1 stað þess ætla ég að segja frá því, sem framliðnir vinir, er ég tel mig hafa talað við, eftir að þeir voru farnir af jörðunni, hafa sagt mér um þann heim, sem þeir búi nú í. Ég hefi enga löngun til þess, að við því, sem ég segi, verði tekið sem opinberun, ég veit ekki einu sinni sjálfur, nema ég kunni að hafa misskilið eitthvað af þv, sem mér hefir verið sagt. Því síður get ég verið öruggur um, að eitthvað kunni ekki óafvitandi að hafa borizt rangt frá miðlinum, en þeir, sem kunnugir eru miðlasambandi, munu skilja þann varnagla. Það, sem hér fer á eftir, er tekið úr óprentaðri bók eftir mig, er það 6. kafli bókarinnar, er heitir „Spurning- ar og svör.“ 1 þessum kafla vil ég gera tilraun til að svara nokkrum af þeim spurningum, sem Spurningar iðulega eru lagðar fyrir þá, sem telja sig og svör. hafa náð sambandi við annan heim. Sumir spyrja af fróðleiksþörf en aðrir af öðrum hvötum. Svörin eru byggð á því, sem mér hefir verið sagt, en ég tel mig ekki hafa neinn rétt til að álíta, að þau séu hin einu réttu. Ég býst við, að öll munum við vera sammála

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.