Morgunn - 01.12.1951, Blaðsíða 8
90
MORGUNN
Til eru margir menn, sem leggja við það fyllstu alvöru
að rannsaka sambandið milli heimanna, og til eru margir
miðlar, sem vinna ágætt verk á þessu sviði, en einnig eru
til margir miðlar, sem eru óupplýstir, ómenntaðir í þess-
um efnum og þekkingarsnauðir, sem eru að verulegu leyti
á valdi anda, sem blekkja. Þessar lágu verur leitast við
að svala hégómaskap fundafólksins, með því að taka á
sig nöfn alls konar frægra látinna ágætismanna, en inni-
haldið í því, sem frá þessum verum kemur, stendur ekki
í neinu hlutfalli við andlegt innihald þessara ágætu manna,
meðan þeir voru enn lífs hér á jörðu. Það er ómerkilegt
þvaður, klætt í skrautleg orð.
Oft hefi ég komizt í kynni við þetta. Fyrir nokkurum
árum heyrði ég anda segja af vörum miðils, að hann
hefði lifað á jörðunni áður en pýramídarnir voru byggð-
ir. Samt talaði hann ágætis nútíma ensku. Það gerði líka
annar andi, sem kvaðst hafa verið hin fræga drottning,
Ester, sem getið er um í Ritningunni.
Ungur maður, sem ekki var gæddur meira en venju-
legri greind, fullyrti, að stjórnandi hans væri sjálfur Sókra-
tes, og fyrir skömmu var okkur hjónunum boðið að koma
á miðilsfund og heyra Jesú tala í gegn um lúður. Við fór-
um auðvitað ekki þangað.
Það er alveg ótrúlegt, hvemig fólk lætur blindast og
blekkjast til þess að taka svona hluti alvarlega. Ég man
sérstaklega eftir einum ungum manni, sem ég hefði getað
búizt við betri dómgreind af. Hann var svo algerlega hrif-
inn af þessum göfugu „verum“, að það var ómögulegt
að koma fyrir hann vitinu. Slíkt verður of oft til þess, að
fólk lendir í geðveikrahælum. Ég spurði hann: „Hvemig
veiztu að þessi andi var Jesús?“ Ungi maðurinn svaraði:
„Ég sá hann og ég tcdaði við hann.“ „Hvaða túngumál
talaði hann?“ „Hann talaði ensku, af því að hún er al-
heimsmál í andaheiminum."
Auðvitað voru þær verur, sem þarna hafa verið að
verki, þær, sem Jóhannes talar um í bréfi sínu: „Þér elsk-