Morgunn - 01.12.1951, Blaðsíða 35
MORGUNN 117
sem fallið hafði honum í skaut og hann batt miklar fram-
tíðarvonir við.
Dag nokkum kom hann fagnandi og glaður heim. Hann
var orðinn meðeigandi í alkunnu og ágætu fyrirtæki, sem
hann vann við. Þetta var stórhapp fyrir hann fjárhags-
lega og mundi bæta stórlega allar aðstæður hans í fram-
tíðinni. „Mig langar til þess, Elvíra,“ sagði hann, „að bjóða
meðeigendum minum til miðdegisverðar, svo að við get-
um talað út af fyrir okkur saman um ýmislegt, sem við
þurfum að taka ákvörðun um. Viltu koma þessu í kring
fyrir mig, og mundir þú ekki vilja borða með Klöm, vin-
konu þinni, þetta kvöld?“
Hún samþykkti þetta fúslega, og gladdist yfir að fá
tækifæri til að hitta Klöru, sem bjó í einnar mílu fjar-
lægð, og var eins náin vinkona hennar og væm þær syst-
ur. John hélt mjög skemmtilegt miðdegisverðarsamkvæmi
fyrir meðeigendur sína, og eftir máltíðina sátu þeir lengi
yfir samræðum um viðskiptamálin, sátu lengi og skröf-
uðu og reyktu. Það var ekki fyrr en klukkan var um ell-
efu, að gestirnir höfðu sig upp í að fara heim. John hélt,
að Elvíra hlyti að vera komin heim og hefði farið beint
upp í herbergi sitt, til þess að gera gestunum ekki ónæði,
og þangað fór John til þess að segja henni gleðifregnim-
ar eftir þessa ánægjulegu kvöldstund. En honum til undr-
unar var Elvíra enn ekki komin heim. Hún var vön að
koma heim snemma á kvöldin og bíða þess, að hann kæmi
heim, og hann var dálítið vonsvikinn yfir því, að nú skyldi
hún ekki vera komin heim, en hann hugsaði sem svo:
Jæja, hún hefur ætlað að láta mig hafa reglulega gott
næði með félögum mínum í kvöld. Líklega hafa þær
vinkonurnar farið í leikhús, en það þýðir að Elvíra kem-
ur ekki heim fyrr en klukkan hálf tólf, eða kannske enn
síðar.
Hann fór nú niður og fór að líta yfir nokkur skjöl
viðvíkjandi fjármálunum, sem hann og félagar hans höfðu
verið að ræða um kvöldið.
B