Morgunn - 01.12.1951, Blaðsíða 60
142
MORGUNN
hefði haft óvenjulegan meðfœddan hjartasjukdóm, sem
hann lýsti nánara, og sagði, að verið hefði vatn í kring-
um hjartað. Móðurinni þótti vænt um þessa orðsendingu.
Hún hafði kvalizt af tilhugsuninni um, að eitthvert hirðu-
leysi barnfóstrunnar hefði orsakað dauða bamsins, sem
allir höfðu talið fætt hraust og heilbrigt að öllu leyti.
Daginn eftir fundinn var líkskurðurinn framkvæmdur,
og hann leiddi í Ijós nákvœmlega það, sem fullyrt hafði
verið i miðilssambandinu um meðfæddan hjartajsúkdóm
bamsins.
Ekki verður þetta dæmi skýrt sem fjarhrif, því að hér
kom fram vitneskja, sem í einskis jarðnesks manns huga
var til. Enginn jarðneskur maður gat vitað um dauða-
orsökina fyrr en eftir líkskurðinn, sem framkvæmdur var
daginn eftir að miðilsfundurinn var haldinn.
Bræðralagið.
Höfuðorsök þess, hve þróuninni miðar seint áfram, er
sú, að menn skilja ekki, að mannkynið er allt ein alls-
herjarfjölskylda. Albert Einstein segir: „Oss skortir ekki
vit til að sigrast á bölinu. Oss skortir menn með ábyrgð-
artilfinningu og hollustu, menn, sem eru reiðubúnir til
sjálfselskulausrar þjónustu við mannkynsheildina."
Það veldur ósegjanlegu böli, bæði þessa heims og ann-
ars, að menn virða ekki lögmál bræðralagsins, en unz
svo verður, er æðri siðmenning óhugsanleg á jörðunni.