Morgunn - 01.12.1951, Blaðsíða 20
102 MORGUNN
Feda: „Hann er í næsta einkennilegu umhverfi.“ (At-
hyglisverð umsögn.)
Feda: „Andlát hans gerist með snöggum hætti.“ (Að
loknum sæmilega rólegum starfsdegi og að því er virtist
óvenju frískur að því sinni, en þegar hann var að hátta
hneig hann niður og var þegar örendur.)
Eg lét þess nú getið, að ég hefði ekki heyrt getið and-
láts neins manns, sem þetta gæti átt við, en Feda hélt
áfram að lýsa manni þessum.
Feda: „Þetta er ekki ungur maður, þú myndir segja,
að hann væri eldri maður.“ (Hann var 65 ára.)
Feda: „Ég hugsa, að þú munir heyra eitthvað um hann.
Ég sé bókstafinn C hjá honum.“ (Hann starfaði mikið í
þágu kirkjunnar okkar í Bromley og hafði gegnt þar
margvíslegum störfum. Ekkja hans sagði mér, að hann
hefði átt eitt aðaláhugamál utan starfsgreinar sinnar, það
var starf í þágu kirkju hans. Sennilega átti bókstafurinn
C að minna á þetta.)
Feda: „Eitthvað minnir mig á fésýslustörf eða viðskipti.
Ég held, að hann hafi ekki verið prestur. Ef hann hefur
verið einhvers konar prestur, þá hefur hann líka fengizt
við viðskipti. Ég finn, að hann hefur fengizt við eitthvað
þess konar.) (Hann var málaflutningsmaður í London.)
Feda: „Hvað? Hann er viðfelldinn maður, mjög við-
felldinn." (Spumingin bendir til, að einhver hafi verið að
segja henni frekar frá þessum manni, en hún segir oft
,,hvað“, er hún bíður frekari upplýsinga um eitthvað.)
Feda: „Þú hefur haft eitthvað saman við hann að sælda
í viðskiptamálum, áreiðanlega einhvem tíma.“ (Þar sem
hann var lögfræðingur minn, hafði hann annazt ýms störf
fyrir mig varðandi skýrslur og viðskipti.)
C.D.T.: „Ég mun hugsa um þetta.“
Feda: „Ég held þú hljótir að muna eftir þessu síðar.“
C.D.T.: „Hefur hann komið á fundinn?" (Ég spurði svo,
af því að það, er Feda hafði sagt, benti fremur til þess