Morgunn - 01.12.1951, Blaðsíða 25
MORGUNN
107
oft ég ætti samræður við framliðna vini mína. Hugsanlegt
virðist, að er hann hafi fundið sig vera starfandi utan jarð-
nesks líkama síns, að hann hafi ályktað að hann væri
þegar alfluttur yfir landamærin og hafi viljað nota tæki-
færið til þess að segja mér frá því, að nú hefði hann
reynt þetta sjálfur, en eftir því, sem Fedu fórust orð, virð-
ist sem ástand hans kunni að hafa verið áþekkt því, að
hann væri að dreyma.
Nokkurum vikum áður an andlát hans bar að, hafði
ég sagt honum, að á fundi með Leslie Flint hefði systur
minni tekizt að tala við mig með eigin rödd utan við
miðilinn. Þessi athugasemd á við samtal, er hún kvaðst
hafa heyrt. Hún kvaðst hafa heyrt, að ég hefði verið að
tala við eiginkonu mína, og ég hefði þá sagt, „að ég þyrfti
að skrifa Emest Hughes“. Veitið því athygli, að ég nefndi
fullt nafn hans, en þetta var ævinlega venja mín, en ég
get fulyrt, að ég nefndi ekki „lögfræðing minn“. Röddin,
sem talaði við mig á umgetnum fundi, nefndi ekki nafn
hans, en sagði „bréf til lögfræðingsins þíns'. Enginn þeirra,
er sátu fund þennan, vissu deili á Ernest Hughes, nema ég.
Ernest Hughes fannst mikið til um þetta sannanaatriði,
er ég sagði honum frá þessu, og önnur þau, er ég hafði
sagt honum frá á liðnum árum. Hann vissi því fullvel, að
ég hafði fengið skilaboð frá framliðnum vinum mínum,
og vitneskja hans um þetta hefur því sennilega átt mest-
an þátt í því að beina atyhgli hans að þessum sambands-
fundi mínum með frú Leonard.
E. Loftsson þýddi úr „Light“.