Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Side 17

Morgunn - 01.12.1951, Side 17
Ófögur orð. 1 síðasta hefti Morguns, bls. 7, eru tekin upp nokkur orð úr „Kristilegu vikublaði". 1 blaði þessu getur höf. til- vitnuðu greinarinnar þess, að ekki sé vitað „hvað biskup hefur átt við með að ákveða sérstakt bænarefni um ,,frið“, því að frið við Guð vill hann ékki. ..." i) Ritað er þetta eftir ræðu biskups á almenna, nýja bæna- daginn. Og þar með fylgja svo þessi ummæli: „en fyrir altari þjónaði séra Jón Auðuns, einn alræmdasti anda- trúarprestur hér á landi, sem með kenningu sinni er í uppreisn við Guð og Orð Hans.“ Og svo fær séra Sveinn Víkingur sinn skerf, eftir prédikun í Strandarkirkju, á þessa leið: „er séra Sveinn Víkingur illrœmdasti og ósvifn- asti villutrúarprestur hér á landi. Nú mun margur spyrja: Er það meining biskups að nota fé Strandarkirkju til þess, að láta Svein Víking leiða fólkið í Selvog(n)um til hél- vítis með viUulœrdómum og andatrú.“ Eigi veit eg, hvort menn trúa því — en eg vil segja eins og er — að mér þókti að vissu leyti vænt um þessi ummæli og undirstrikuðu orð. Ekki þó af því, að þau séu hugðnæm og umburðarlynd, eða kærleiksrík og kristi- leg. Heldur af hinu, að slík svívirðingarorð og sleggju- dómar, án röksemda og sakarefna, um þjóðfræga menn og mjög almennt vinsæla, — menn, sem forðast lastmæli og ósamlyndi við andstöðubræður sína á trúmálasviðinu. 1) Orð þessi og önnur síðar hef ég undirstrikað. V. G.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.