Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Síða 27

Morgunn - 01.12.1951, Síða 27
MORGUNN 109 urðu ekki samhljóða. En af þvi, sem hér verður sagt frá, virðist ástæða að ætla, að þarna hafi þó verið um einhver sannindi að ræða. En þetta er nú aukaatriði. Að síðustu barst svo tal okkar að þessari veru, sem hér ræðir um. Þegar við höfðum dálítið rætt í sambandi við hana, segi ég: „Þess vildi ég óska, að ég ætti eftir að komast ein- hvem tíma í tak við þann karl.“ Ég hafði varla sleppt síðasta orði mínu, er ég fékk ósk mína uppfyllta. Það var sem herbergið fylltist af storm- andi ofviðri, líkt og þegar gluggi brotnar í ofsaroki og vindurinn leikur um húsið. Það hvein innan í herberginu og allt virtist ætla um koll að keyra. Ofsahræðsla greip kvenfólkið, svo það hljóðaði upp. Lára henti sér upp í rúmið hjá mér, en Guðbjörg hjá systur sinni. Mér varð fyrst mjög hverft við, en áttaði mig fljótt og sagði, að við skyldum vera róleg. Þetta gengi fljótt yfir. Um leið og þetta byrjaði leit ég til dyra. Sá ég fast við hurðina kolsvartan kökk eða hnykil, sem valt þar á sama stað með ofsahraða og stækkaði fljótt, eins og und- ið væri upp á hann. Þegar hann var orðinn á stærð við venjulegan fótbolta, hentist hann inn gólf með ofsahraða, hvarf mér bak við Lukku, sem á sama augnabliki stakkst kollhnýs fram yfir sig og lenti á grúfu með barnið undir sig. Hljóðaði hún upp: „Guð hjálpi mér. Hver hrindir mér svona? Ætlið þið að drepa barnið í höndunum á mér.“ Þetta gerðist allt á augnabliki að kalla og var nú kom- in kyrrð á allt í herberginu. En þessi augnablik eru þau ægilegustu, sem ég hef lifað. Áhrifin frá þessu voru hrylli- leg. Lukka staðhæfði, að eitthvað hefði komið aftan að sér og steypt sér áfram með snöggu átaki. Hefði sér fyrst komið í hug, að einhver hefði hrundið snöggt upp hurð- inni og hún skollið á bak sitt. Hinar allar sáu svarta hnoðið þjóta inn gólfið og Lára sagði, að þegar það hefði verið búið að henda Lukku, hefði það þotið fram hjá sér og hún þá fundið eins og eitthvað flækjast um fætur sér.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.