Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Síða 72

Morgunn - 01.12.1951, Síða 72
154 MORGUNN Ég man aðeins eftir einu atviki, sem ég get varla skilið. Samkoma var eitt sinn haldin úti í bæ. Ég var þar ekki viðstaddur. Þar hafði talað rödd norðlenzkrar konu, sem enginn viðstaddur þekkti, og talið var víst, að miðillinn hefði aldrei heyrt eða séð. Kona þessi var dáin fyrir fám árum og var ég henni gagnkunnugur. Hún var einkenni- leg í orðbragði og ýmsu fasi, en þó ekki á þann hátt sem auðvelt væri að lýsa eða herma eftir. Á næstu samkomu kemur svo kona þessi stutta stund, og hún var svo lík konunni í lifanda lífi, að vel hefði mátt halda að hún væri þar lifandi komin. Ég minntist á eitt af börnum hennar; hún svaraði mjög náttúrlega. Ef óyggjandi vissa hefði verið fyrir því, að miðillinn hefði aldrei séð eða heyrt konuna, þá hefði þetta verið nálega úrslitasönnun í mínum augum. öðru sinni talaði við mig gamall kunningi. Hann var nauðalíkur sjálfum sér í hugsunarhætti og málfæri, en miðillinn hafði þekkt hann. Það var kækur hans að segja einstöku sinnum orðskrípi nokkurt, sem fáum var kunn- ugt. Ég sagði þá byrjunina, en hann bætti óðara við niðurlaginu. Mér knykkti við. Síðar var mér sagt, að mið- illinn hefði þekkt orðatiltækið, svo sönnunin var engin. Aftur spurði ég mann þenna hvað eftir annað um hlut, sem ég einn vissi og honum hlaut að vera minnisstæður. Því gat hann aldrei svarað! Hvað lá nú nær en að álíta allt þetta ,,tal“ raddanna einhvers konar sjálfrátt eða ósjálfrátt búktal frá miðlin- um? Ég fór fram á það oftar en eitt sinn að fá að styðja fingrinum á barkakýli miðilsins meðan raddirnar létu til sín heyra, einhvers staðar í herberginu. Mér ■ var ekki leyft það. Þá var og annað, sem eindregið studdi búktals- gruninn: Aldrei talaöi nema ein rödd i senn, ekki svo að ég þyrði að fullyrða það með vissu, en oft skiptust radd- ir á með svo litlu millibili að illt var að fullyrða, hvort síðari röddin gripi ekki fram í fyrir hinni fyrri. Flestir eldri félagar trúðu ekki, að hér væri um búk-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.