Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Side 77

Morgunn - 01.12.1951, Side 77
MORGUNN 159 var eins og hún færi hvarvetna eldi um landnámið, á þann hátt, að brenna burtu allan gamla gróðurinn. Ritn- ingarnar voru rannsakaðar. Biblían varð að merku en al- gerlega mannlegu sagnriti. Björgin voru klofin og huldu- fólkið fannst hvergi. 1 rafmagnsbirtunni hurfu reimleik- arnir. Allt hið dularfulla hvarf, djöflar og englar, draug- ar, huldufólk, og það lá við sjálft, að Guð gengi alveg úr móð. Áður hafði hann stjórnað öllu, smáu og stóru, af miklum vísdómi og enn meiri kærleika, hlustað á bæn- ir manna og slakað til, þegar bænin kom frá trúuðu hjarta. Nú komu náttúrulögin og tóku við stjórninni, meðvitund- arlaus og ósveigjanleg. Allt varð háð föstu órjúfanlegu orsakalögmáli, heyrnarlausu fyrir öllum bænum mann- anna. Sjálfur vilji þeirra varð háður því og frjálsræðið, sem skuldinni fyrir syndafalliö hafði verið skellt á, reynd- ist minna en ekkert. Ef spurt var svo um, hversu nátt- úrulögmálið hefði til orðið, hver sá mikli löggjafari væri, er það hefði sett, var svarið fljótsagt: Enginn! Það hafði verið til frá eilífð, þau tvö hjúin, aflið og efnið. Þau voru uppspretta alls. Það var bjart yfir þessum heimi, fullum af skýrum rökum í ótal greinum, og hvervetna sýndist reynslan styðja þessa nýju heimsskoðun, sem virtist renna grun í, hversu í öllu lægi í heiminum.. Það mátti greina allt sundur í svo algerlega aðgreinda flokka: liið þekkjarilega og hið óþekkjarilega (Spencer). Hið þekkjanlega hlaut allt að lúta svipuðum lögum og liið marga, sem ljóst var orðið, en hið óþekkjanlega, t. d. hvað tæki við eftir gröf og dauða, var ekki til neins að hugsa um, því það hlaut til eilífðar að vera óþekkjanlegt og allt draumórar og skáld- skapur, sem um það var sagt. Þessi mikla heimsskoðun lukti þannig um alla tilveruna eins og Miðgarðsormur- inn um lönd öll. Takmörk mannsandans voru fundin, aðeins eftir að rækta upp ýmsa bletti innan girðingar- innar. Út yfir hana komst enginn. öll kraftaverk og kynja- sögur voru að sjálfsögðu hreinasta hjátrú. Allt, hvert ein-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.