Morgunn - 01.06.1957, Side 37
MORGUNN
31
og vetrarbrautina. I sýn sá hún alla helgisögnina um heil.
Katrínu frá Alexandríu, nám hennar við háskólann, við-
ræður hennar við heimspekinga þeirrar aldar, píslarvætt-
isdauða hennar og það, að englar báru líkama hennar til
Sínaífjalls. Elísabet frá Schönau vissi ekki betur en að
þetta væru sögulegar staðreyndir, en öll sagan er helgi-
sögn, sem aldrei gerðist raunverulega. En jafnframt sá
hún guðsþjónustuhelgisiði, sem alls ekki voru til þá, en
komu miklu síðar upp.
María frá Agreda staðhæfði að hvert orð í bók hennar,
Borg Guðs, væri til hennar komið beint frá Guði, en bók-
in er full af sögulegum skekkjum. Heil. Norbert frá Xan-
ten hélt því fram, að And-Kristurinn mundi koma fram
á dögum hans. Heil. Vincent Ferrer fullyrti, að sér hefði
vitrast í sýn, að endir heims væri í nánd. Ameríski sjá-
andinn María frá Earling lýsti yfir því, að And-Kristur-
inn myndi koma fram árið 1952, 33 ára gamall, og deyja
árið 1955. Biskup hennar og skriftafaðir studdu þennan
spádóm hennar.
Þessar staðreyndir eru ekki örfandi. En að afneita öll-
um sönnum dulsýnum á grundvelli þessara mistaka, og
dæma allar vitranir sem huglægar skynvillur, er samt
álíka rangt og það, að afneita öllum fjarhrifum vegna
þess að fjarhrifatilraunir hafa stundum gefið neikvæðan
árangur. Hollenzki miðillinn Gerard Croiset hefir ævinlega
verið fús til að gangast undir hverskonar kröfur vísinda-
manna, sem athugað hafa fyrirbrigði hans. Prófessor Ten-
haeff, prófessor Hans Bender o. fl. hafa haldið nákvæmar
skýrslur yfir athuganir sínar á þessum miðli, og þær leiða
í ljós, að nokkur atriði af hverjum 100 spádómum hans
hafa reynzt röng, en að verulegur hundraðshluti spádóma
hans hefir síðar reynzt réttur.
Það væri ánægjulegt, ef allt þetta vandamál um sýnir
sjáendanna væri einfaldara en það er og færri vandamál
á veginum. En vér höfum ekkert leyfi til að flokka allar
dulsýnir í einn flokk og kalla þær blátt áfram huglægar