Morgunn - 01.06.1957, Side 38
32
MORGUNN
skynvillur eða ofskynjanir. Nýlega er komin út önnur út-
gáfa af bókinni, Fyrirbrigðafræði dulhyggjunnar (Pháne-
menologie der Mystik, Olten, Sviss, 1955), eftir Gerda
Walther, sem er lærð kona í sálarrannsóknum og þaul-
kunnug dulsinnastefnunni. 1 bókinni sýnir hún fram á,
af mikilli þekkingu og lærdómi, hve náið samband er milli
fjarhrifanna (telepathie) og þess að sjá ójarðneskar ver-
ur og heyra raddir þeirra.
Afstöðu dr. Gerdu Walther get ég gert að afstöðu minni.
Ég er á sama máli og 'hún: henni eru augljósir erfiðleik-
arnir á að skýra þessi fyrirbrigði, samt er henni jafn-
ljóst, að það er ekki hægt að afgreiða allar dulskynjanir
með því, að segja að þær séu hugarfóstur ímyndunarafls-
ins, — og láta svo málinu lokið.
J. A. þýddi eftir próf. dr. Gebhard Frei. Hann er prófessor við
guðfræðiskólann í Schoeneck í Sviss, og kennir þar heimspeki og
samanburð trúarbragða. Hann er höfundur margra bóka og rit-
gerða um sálfræði og trúarbrögð.
★
Catherine Berry
var víðkunnur enskur miðill. Hún andaðist nokkru fyrir aldamótin
síðustu. Að miðilskrafti hennar gengu hinar furðulegustu sögur,
enda sóttu margir frægir miðlar þeirra tíma til hennar, sátu nokkra
fundi með henni, og virtist miðilskraftur þeirra stórum aukast við
þá fundi. í bók sinni, Experiences in Spiritualism, segir hún frá
mörgum frægustu miðlum samtíðarinnar, sem komu til að fá fundi
með henni. Hún skrifaði ósjálfrátt, málaði ósjálfrátt og þroskaði
með sér lækningagáfu. Árið 1874 hélt hún sýningu í Brighton á
500 einkennilegum vatnslitarmyndum, sem hún hafði málað ósjálf-
rátt.