Morgunn


Morgunn - 01.06.1957, Side 83

Morgunn - 01.06.1957, Side 83
MORGUNN 77 urinn þarfnast nýrrar trúar, er yfir allan efa hafið — segir Malvida v. Meysenbug — gömlu trúarbrögðin eru búin að lifa sjálf sig“. Hvorki austræna leiðin né þessi vestræna leið er full- nægjandi. Hin vestræna þrá eftir nýjum átrúnaði felur í sér þá meginhættu, að menn varpi fyrir borð óbætanleg- um verðmætum hinna gömlu trúarbragða. Hinn skefja- lausi, austræni relatívismus, að telja öll trúarbrögð jafn- gild, er í beinni mótsögn við sögulegar staðreyndir og þekkingu. Trúarbrögðin eru einfaldlega ekki jafngild, en spurningunni um gildi þeirra verður ekki svarað, nema lifandi samskipti og samanburður trúarbragðanna eigi sér stað. Hlutlaus samanburður við austrænu trúarbrögðin hefir nú þegar leitt í ljós það, að kristindómurinn stendur ekki aðeins jafnfætis þeim, heldur býr yfir tvímælalausum yfirburðum í ýmsum efnum. Hann er mikrokosmos (smá- heimur) í hinum trúarbragðalega makrokosmos (alheimi), það er: hann býr yfir fyllingu trúarlegrar fjölbreytni og forma og í henni býr aftur fylling sanninda og verð- mæta. Hin sögulega orsök þessarar fyllingar kristindómsins er sú, að í honum renna saman í einum farvegi fjölmarg- ir straumar þess andlega lífs, sem til hefir orðið á jörð- unni: spámannleg trú Gyðinga, hugmyndir forn-Persa um heimsslit og annað líf, hin helleníska-austræna launhelga- trú, hin gríska heimspeki og dulúð, mýstík. Af öllum þessum meginlindum andlegs lífs mannkynsins hefir krist- indómurinn ausið. Ekki í hinum einstöku myndum, sem kirkjurnar hver fyrir sig aðhyllast, heldur í heildarmynd sinni og allsherjartjáningu, nær kristindómurinn yfir bók- staflega allt og felur í sér bókstaflega allt hið verðmæt- asta, sem mannkynssagan geymir: lotninguna fyrir sam- ræmi alheimsins og hinu guðlega siðalögmáli, sem Kon- futse hinn kínverski stóð höggdofa andspænis; lotningar- óttann fyrir hinum ólýsanlega guðlega leyndardómi, sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.