Morgunn - 01.06.1957, Page 85
MORGUNN
79
leita nokkurs þess í öðrum trúarbrögðum, sem hann gæti
ekki fundið í sinni eigin trú. En kirkjudeildirnar halda
hver um sig fram sínum brotum heildarinnar, svo að hin
geysilega víðfeðma heildarmynd kristninnar gleymist
mörgum. Það, sem mjög hefir laðað marga nútímamenn
að Laotse, Uphanishadbókunum, Bhagavadgita, búddha-
dómi og hinni íslömsku súfistefnu, finnum vér í sama mæli
í hinni klassísku, kristnu mýstík.
Þessi ómælanlega fylling og gnægð, sem kristindómur-
inn býr raunverulega yfir, á dýpstu rætur sínar í þeirri
staðreynd, að opinberunarhugtak hans er víðtækara en
nokkurra annarra trúarbragða. Engin hinna ekki-kristi-
legu hátrúarbragða standa í þessu jafnfætis kristindóm-
inum. Ennfremur er það sannleikur, að engin önnur trú-
arbrögð eiga eins djúptæka og um leið víðfeðma samfé-
lagshugsjón og kristindómurinn. Kirkjan, sem hinn leynd-
ardómsfulli líkami Krists, corpus Christi mysticum, um-
lykur alla þjóðir, allar stéttir, alla menn á öllum öldum,
já, bæði þessa heims og annars. Kaþólsk kirkja, ekki hin
rómversk-kaþólska, heldur kaþólsk í sannri og raunveru-
legri merking þess orðs, er til frá upphafi og er alls stað-
ar til. 1 eðli sínu sem almenn, universal, kirkja býr hún í
sjálfri sér yfir hæfileikanum til þess að samlagast sér-
kennum hinna ólíkustu þjóða og menningu þeirra. Tal-
andi dæmi þess er hin kirkjulega list, sem komið hefir
fram í öllum löndum, þar sem kirkjan hefir rekið trúboð
sitt. Og þessi kristilega list í trúboðslöndunum hefir jafn-
hliða því að vera sannkristin, staðið föstum fótum í heiðn-
um trúararfi landanna. Merkilega mynd þess gaf trúboðs-
sýningin mikla, sem haldin var í Rómaborg árið 1950.
En kristindómurinn hefir ekki aðeins þennan mikla
sveigjanleika, þennan mikla samlögunarhæfileika fram
yfir önnur trúarbrögð, heldur einnig ríkan hæfileika til
að vaxa og taka breytingum. Þrátt fyrir sterka hneigð
til kirkjulegrar og biblíulegrar fastheldni annars vegar,
býr kristindómurinn hins vegar yfir takmarkalausum hæfi-